Nýlega efndu Ríkiskaup f. h. Landhelgisgæslu Íslands til lokaðs útboðs í kjölfar forvals vegna smíði á nýju varðskipi fyrir LHG. Í forvalinu var auglýst eftir þátttakendum í lokað útboð og urðu eftirtaldir aðilar fyrir valinu;
Aker frá Noregi, Asmar frá Chile, Bergen frá Noregi, Damen frá Hollandi, Peene-Werft frá Þýskalandi og SIMEK frá Noregi.
Helstu kröfur sem settar voru fram í útboðsgögnum varðandi skip og búnað:
Nauðsynlegt að nýtt varðskip fyrir LHG verði hannað og útbúið þannig að það hafi getu til að gegna ákveðnum verkefnum og hafi ákveðna eiginleika s.s.:
Löggæsla
Fiskveiðieftirlit
Auðlindagæsla innan efnahagslögsögunnar
Leit og björgun
Sjúkraflutningar – fólksflutningar
Björgunar – dráttar og köfunarstörf
·
Til að sinna og stjórna leitar- og björgunarstörfum á hafinu umhverfis Ísland við verstu aðstæður.
Flutningur á björgunarliði og búnaði.
Búnaður til að láta þyrlu á hangflugi (hover) hafa eldsneyti (HIFR búnaður)
Stjórnstöð í stærri björgunaraðgerðum
Um mat á tilboðum
Ákveðið hefur verið hvaða þættir munu ráða mestu við valið og eftirfarandi viðmið verið sett:
Verð mun ráða 35% ( Líftímakostnaður til 15 ára)
Tæknileg útfærsla, hönnun og hvernig kröfur eru uppfylltar ráða 50%
Framleiðandi; gæði vélbúnaðar og tækja ræður 15%
M/V TYR - Helstu stærðir
Nýtt varðskip - Helstu stærðir
Eigin þyngd ......................... 342 Tonn
Lengd ................................. 71,15 M
Breidd .................................. 10,00 M
Mesta djúprista ...................... 5,80 M
Ganghraði á 90% krafti (MCR) 17.8 Hnútar
Togkraftur ............................. 56 Tonn
Eigin þyngd .......................... 1,000 Tonn
Lengd.................................. . 80 – 90 M
Breidd.................................. . 15 - 16 M
Mesta djúprista...................... .... 6.50 M
Ganghraði á 90% krafti (MCR)... . 18 Hnútar
Togkraftur .........................100 Tonn min.
Olíu- flutningstankar ..A.m.k. 500 - 1000 m3
(Fyrir mengunarolíu – Upphitun).
Eftirfarandi tilboð bárust:
SIMEK 33.100.000.- Evrur Peene-Werft 36.800.000.- Evrur
Damen 30.600.000.- Evrur Asmar 27.261.000.- Evrur og
boð nr. 2 27.863.000.- Evrur
Nú þegar tilboð hafa verið opnuð tekur við vinna við að yfirfara þau og meta og er stefnt er að undirritun samnings um miðjan nóvember.
Lesa meira