Fréttir

Fyrirsagnalisti

25. sep. 2006 : Nýtt varðskip.

Nýlega efndu Ríkiskaup f. h. Landhelgisgæslu Íslands til lokaðs útboðs í kjölfar forvals vegna smíði á nýju varðskipi fyrir LHG. Í forvalinu var auglýst eftir þátttakendum í lokað útboð og urðu eftirtaldir aðilar fyrir valinu; Aker frá Noregi, Asmar frá Chile, Bergen frá Noregi,  Damen frá Hollandi,  Peene-Werft frá Þýskalandi og SIMEK frá Noregi.  Helstu kröfur sem settar voru fram í útboðsgögnum varðandi skip og búnað: Nauðsynlegt að nýtt varðskip fyrir LHG verði hannað og útbúið þannig að það hafi getu til að gegna ákveðnum verkefnum og hafi ákveðna eiginleika s.s.:  Löggæsla Fiskveiðieftirlit Auðlindagæsla innan efnahagslögsögunnar Leit og björgun Sjúkraflutningar – fólksflutningar Björgunar – dráttar og köfunarstörf ·           Til að sinna og stjórna leitar- og björgunarstörfum á hafinu umhverfis Ísland við verstu aðstæður. Flutningur á björgunarliði og búnaði. Búnaður til að láta þyrlu á hangflugi (hover) hafa eldsneyti (HIFR búnaður) Stjórnstöð í stærri björgunaraðgerðum Um mat á tilboðum Ákveðið hefur verið hvaða þættir munu ráða mestu við valið og eftirfarandi viðmið verið sett: Verð mun ráða 35% ( Líftímakostnaður til 15 ára) Tæknileg útfærsla, hönnun og hvernig kröfur eru uppfylltar ráða 50% Framleiðandi; gæði vélbúnaðar og tækja ræður 15% M/V TYR - Helstu stærðir Nýtt varðskip  - Helstu stærðir  Eigin þyngd .........................     342 Tonn Lengd .................................       71,15 M Breidd ..................................     10,00 M Mesta djúprista ......................      5,80 M Ganghraði á 90% krafti (MCR) 17.8 Hnútar Togkraftur .............................   56 Tonn    Eigin þyngd .......................... 1,000 Tonn Lengd.................................. . 80 – 90 M Breidd.................................. . 15 - 16 M Mesta djúprista...................... .... 6.50 M Ganghraði á 90% krafti (MCR)... . 18 Hnútar Togkraftur .........................100  Tonn min. Olíu- flutningstankar ..A.m.k. 500 - 1000 m3  (Fyrir mengunarolíu – Upphitun).   Eftirfarandi tilboð bárust:  SIMEK              33.100.000.- Evrur          Peene-Werft      36.800.000.- Evrur Damen            30.600.000.- Evrur           Asmar                27.261.000.- Evrur og                                                                       boð nr. 2            27.863.000.- Evrur   Nú þegar tilboð hafa verið opnuð tekur við vinna við að yfirfara þau og meta og er stefnt er að undirritun samnings um miðjan nóvember. Lesa meira
 

25. sep. 2006 : Öryggisvika sjómanna

Ráðstefna um öryggi sjófarenda verður í Fjöltækniskóla Íslands, miðvikudaginn 27. september. Sjá nánar í auglýsingu. Lesa meira
 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica