Fréttir

Fyrirsagnalisti

Hollvinir_Odins

27. okt. 2006 : Hollvinasamtök Óðins

Föstudagur 27. október 2006

Í gær voru stofnuð Hollvinasamtök Óðins. Fjölmenni mætti á stofnfundinn sem haldinn var í Víkinni, sjóminjasafni Reykjavíkur.

Lesa meira
 
2006-10-25,_Ahafnir_b_OBX

26. okt. 2006 : Myndir af þyrlusveit

Fimmtudagur 26.október 2006

Þrjár þyrlur LHG fóru til móts við flugvél sem tilkynnt hafði um bilaðan hreyfil í gær. Flugvél LHG var undirbúin undir björgunarflug og varðskipið Týr fór til móts við flugstefnu vélarinnar.

Lesa meira
 
3_tyrlur_yfirflug_REK

25. okt. 2006 : Viðbrögð Landhelgisgæslunnar við tilkynningu um flugvél með bilaða hreyfla

Miðvikudagur 25. október 2006

Kl. 14:59 barst Vakstöð siglinga/Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar

upplýsingar um að flugvél frá Continental flugfélaginu væri með bilaða hreyfla.

Lesa meira
 
Sancy-malid_2

11. okt. 2006 : Aðalmeðferð Sancy málsins

Miðvikudagur 11. október 2006

Þriðjudaginn 10. október fór fram aðalmeðferð í opinberu máli sem lögreglustjórinn á Eskifirði höfðaði gegn Elnar Holm skipstjóra færeyska togarans Sancy TG-519 fyrir að hafa 18. júní sl. óhlýðnast fyrirmælum varðskipsins Óðins og tálmað skipverjum varðskipsins uppgöngu í togarann.
Hann var jafnframt, ásamt Vagnar Joensen stýrimanni, ákærður fyrir fiskveiðbrot í íslenskri lögsögu.
Við aðalmeðferð málsins báru 11 starfsmenn Landhelgisgæslunnar sem að málinu komu vitni. Meðfylgjandi myndir eru af starfsmönnum Landhelgisgæslunnar í Héraðsdómi Austurlands á Egilsstöðum og á Egilsstaðaflugvelli.

Lesa meira

 

11. okt. 2006 : Tilkynning frá Landhelgisgæslunni

Miðvikudagur 11. október 2006

Vegna komu bandaríska herskipsins Wasp til Reykjavíkur sem mun leggjast að bryggju við Skarfabakka mun svæðið umhverfis bryggjuna verða lokað fyrir skipa- og bátaumferð frá miðvikudeginum 11. október fram til brottfarar skipsins. Varðbáturinn Baldur mun verða með gæslu á lokunarsvæðinu. Stjórnendur skipa og báta sem leið eiga um Viðeyjarsund er bent á að Landhelgisgæslan verður með hlustvörslu á rás 12 VHF um borð í Baldri.

Lesa meira
 
LHG_flugrekstrarleyfi

09. okt. 2006 : Landhelgisgæslan fær flugrekstarleyfi

Mánudagur 9.október 2006

Föstudaginn 6. október sl. fékk Landhelgisgæsla Íslands útgefið flugrekstrarleyfi hjá Flugmálastjórn. Leyfið hefur mikla þýðingu fyrir stofnunina og býður upp á ýmsa möguleika varðandi störf stofnunarinnar til framtíðar. Flugrekstrarleyfi er grundvöllur þess að erlend fyrirtæki fáist til að leigja loftför til Landhelgisgæslunnar en eins og kunnugt er stendur til að stofnunin fái 3 þyrlur leigðar.

Lesa meira

 
Vs_TYR_heim_2006_2

09. okt. 2006 : Vs/ Týr kemur til landsins eftir endurbætur

Mánudagurinn 10. október 2006

Vs/ Týr kom til landsins nú fyrir helgi eftir viðamiklar endurbætur í Póllandi. Blaðamannafundur var haldinn um borð föstudaginn 6. október til að kynna breytingarnar. Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra var viðstaddur ásamt fulltrúum ráðuneytisins og starfsmönnum Landhelgisgæslunnar.

Lesa meira

 
Ny_thyrla_2006_3

09. okt. 2006 : Landhelgisgæslan fær flugrekstarleyfi og ný þyrla kemur

Mánudagur 9. október 2006

Laugardaginn 7. október var því fagnað í flugskýli Landhelgisgæslunnar að stofnunin hefur fengið flugrekstrarleyfi frá Flugmálastjórn Íslands. Við sama tækifæri var tekið á móti nýrri Puma þyrlu Landhelgisgæslunnar, en hún er tekin á leigu hjá norska fyrirtækinu AirLift.
Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra, Georg Kr. Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar og Pétur K. Maack framkvæmdastjóri Flugöryggissviðs Flugmálastjórnar héldu ræður við þetta tilefni.

Lesa meira
 
Gusti_i_Papey_SF

05. okt. 2006 : Gústi í Papey

Fimmtudagur 5. október 2006
Í síðustu ferð Ægis var flak af Gústa Í Papey SF myndað á botninum sunnan við Langanes en einn björgunarbátur skilaði sér ekki upp eftir að hann sökk. Þess vegna var farið með myndavél niður að flakinu sem var á 160 metra dýpi og það kannað.
Í ljós kom að björgunarbáturinn var ennþá á sínum stað á bátnum.

Lesa meira

 
TF-LEO

02. okt. 2006 : Margvísleg verkefni Landhelgisgæslunnar

Mánudagur 2. október 2006

Starfsmenn Landhelgisgæslunnar fóru um daginn með starfsmenn Rannsóknarnefndar flugslysa norður fyrir Vatnajökul, að Gæsavatni á TF LIF. Þar hafði TF-LEO  brotlent og verið var að rannsaka atvikið. Engin slys urðu á mönnum við óhappið.

Lesa meira

 
Osk_KE-5_2

02. okt. 2006 : Takk fyrir að hirða karlinn upp

Skipstjórinn á Ósk KE 5, Sævar Bryjólfsson kom nú fyrir skemmstu með köku til áhafnar og flugdeildar Landhelgisgæslunnar til að þakka fyrir aðstoð sem hann fékk 20. september 2005.  Í fluginu voru Benóný Ásgrímsson, flugstjóri, Jón Erlendsson, spilmaður, Friðrik Höskuldssn, stýrimaður, Hörður Ólafsson, læknir og Sigurður Heiðar, flugmaður. Lesa meira
 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica