Fréttir

Nr_29

23.1.2007 : Orkustjórnunarkerfi í nýtt varðskip

Þriðjudagur 23. janúar 2007
Björn Bjarnason Dómsmálaráðherra og Jón Ágúst Þorsteinsson framkvæmdastjóri Marorku gengu í dag frá samningi um innleiðingu Maren orkustjórnunarkerfi Marorku í nýtt varðskip Landhelgisgæslunnar. Nýja varðskipið er fyrsta skip sinnar tegundar búið Maren orkustjórnunarkerfi en við það opnast ný og spennandi tækifæri fyrir Marorku.

Lesa meira

 
Orduveiting2

11.1.2007 : Þyrluáhöfn LHG veitt heiðursorða danska sjóhersins

Fimmtudagur 11. janúar 2006.

Danski varnarmálaráðherran Søren Gade veitti áhöfn TF-Lífar, sem vann að björgun skipverja af danska varðskipinu Triton, heiðursorðu danska sjóhersins við athöfn sem fram fór á skrifstofu Landhelgisgæslunnar í dag.

Lesa meira
 
Þórshöfn-Raufarhöfn1

9.1.2007 : Nýjar eldsneytistunnur á Þórshöfn

Þriðjudagur 9. janúar 2006.

Síðastliðinn laugardag flaug áhöfn þyrlunnar TF LIF til Þórshafnar ásamt Geirþrúði Alfreðsdóttur flugrekstrarstjóra og Höskuldi Ólafssyni flugtæknistjóra. Tilgangur ferðarinnar var að taka í notkun eldsneytistunnur auk þess sem æft var með björgunarsveitum á Þórshöfn og Raufarhöfn.

Lesa meira

 
_DSC1115

5.1.2007 : Störf sjálfboðaliða í brennidepli á 112 daginn

Föstudagur 5. janúar 2006.

112 dagurinn verður haldinn á vegum viðbragðsaðila í björgun og almannavörnum um allt land sunnudaginn 11. febrúar næstkomandi. Að þessu sinni verður dagurinn helgaður margvíslegum störfum sjálfboðaliða að forvörnum, leit og björgun, almannavörnum og neyðaraðstoð. Megináhersla verður lögð á að kynna starf sjálfboðaliðasamtakanna og mikilvægi þess.

Lesa meira
 




þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.