Fimmtudagur 22. febrúar 2007
Undanfarnar vikur hafa skipstjórnarmenn af varðskipum og flugdeild Landhelgisgæslunnar sem og varðstjórar úr Vakstöð siglinga og nokkrir starfsmenn Fiskistofu setið tveggja daga námskeið er varðar störf þeirra í tengslum við fiskveiðieftirlit á vegum Norð-Austur Atlanshafs Fiskveiðiráðsins (NEAFC). Leiðbeinandi á námskeiðunum er Gylfi Geirsson forstöðumaður sem er fulltrúi og sérfræðingur Landhelgisgæslunnar í NEAFC málefnum. Honum til aðstoðar er Thorben Lund yfirstýrimaður sem hefur orðið mikla reynslu af svokölluðu NEAFC eftirliti bæði úr lofti og með varðskipum stofnunarinnar.
Mánudagur 19. febrúar 2006
Í tilefni af upplýsingum um að olímengun væri á svæðinu frá Garðskaga inn að Njarðvík og sést hefðu fuglar sem hefðu orðið fyrir slíkri mengun, var flugvél Landhelgisgæslunnar TF SYN, send í eftirlitsflug yfir svæðið. Áhöfn flugvélarinnar tilkynnti nú fyrir skömmu að þeir hefðu ekki orðið varir við neina olíflekki á þessu svæði.
Lesa meiraMánudagur 12. febrúar 2007
Geysilega margt var um manninn í Smáralind á 112 daginn þegar sjálfboðaliðar Rauða krossins og Slysavarnafélagsins Landsbjargar kynntu þar fjölbreytt störf sín að björgun og almannavörnum. Erilsamt var hjá þeim sem stöðu vaktina við að kynna störf að leit, björgun, skyndihjálp, fjöldahjálp og fleiri verkefnum sem sjálfboðaliðar sinna.
Þá vakti 112 lestin verðskuldaða athygli og fjöldi fólks fylgdist með björgunarsýningu Landhelgisgæslunnar, björgunarsveitarmanna og slökkviliðsmanna SHS á bílaplaninu við Smárabíó. Ríflega 30 björgunartæki af ýmsum stærðum og gerðum voru í 112 lestinni að þessu sinni.
Nú fyrir skemmstu fóru tveir starfsmenn sprengjudeildar Landhelgisgæslunnar, þeir Jónas Þorvaldsson og Adrian J. King á vegum íslensku friðargæslunnar til starfa við sprengjueyðingu í suðurhluta Líbanon. Þeir voru fluttir ásamt búnaði til Beirút með fluvél Landhelgisgæslunnar TF SYN. Verkefnið mun standa í 3 mánuði og mun Marvin Ingólfsson sprengjusérfræðingur fara utan síðar, þeim til liðveislu. Með í för er Kristján Sigfússon bráðaliði frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.
Flugstjóri í ferðinni var Tómas Helgason. Flugmenn voru Hafsteinn Heiðarsson og Pétur Steinþórsson. Flugvirki var Sverrir Erlingsson.
Þriðjudagur 6. febrúar 2007
Sá sjaldgæfi atburður átti sér stað á dögunum að allur floti LHG lá saman í heimahöfn. Slíkt hefur ekki átt sér stað lengi. Þetta ástand varði nú samt ekki lengi þar sem Týr hélt út síðdegis sama dag.
Lesa meira