Fréttir

Fyrirsagnalisti

Gná - móttökuathöfn í flugskýli 7.6.07

29. jún. 2007 : Þyrlur Landhelgisgæslunnar taka þátt í umferðareftirliti

Föstudagur 29. júní 2007.
Þyrlur Landhelgisgæslunnar taka þátt í umferðareftirliti um helgina. Það er liður í samstarfi Ríkislögreglustjórans og annarra lögregluembætta við forvarnir gegn umferðarslysum.  Framhald verður á þessu samstarfi í sumar.

Lesa meira

 
Thorben Lund sigmaður/stýrimaður

29. jún. 2007 : Þyrludraumar vísindakonu

Föstudagur 29. júní 2007.
Áhöfn Landhelgisgæsluþyrlunnar Gnár bárust í gær þakkir frá áhöfninni á bandaríska rannsóknaskipinu Knorr. Gná hafði ferjað nýjan rannsóknakapal til skipsins í stað kapals sem hafði skemmst og sótti einnig bátsmanninn sem var meiddur á fæti og kom honum til læknis á Landspítala Háskólasjúkrahúsi í Fossvogi. Lesa meira
 
Sif aðstoðar við flutning timburs í björgunarskýli í Látrum

26. jún. 2007 : Nýtt björgunarskýli á Látrum

Þriðjudagur 26. júní 2007.
Á heimasíðu Grenivíkur er sagt frá byggingu nýs björgunarskýlis á Látrum en áhöfn Landhelgisgæsluþyrlunnar Sifjar aðstoðaði við að flytja timbur á byggingarstaðinn.

Lesa meira
 
Gná - móttökuathöfn í flugskýli 7.6.07

26. jún. 2007 : Mikill viðbúnaður vegna elds um borð í Hafsúlunni - 75 manns um borð

Þriðjudagur 26. júní 2007.´
Allt tiltækt björgunarlið var kallað út á sjötta tímanum í gær vegna elds um borð í hvalaskoðunarskipinu Hafsúlunni. Sjötíu og fimm manns voru um borð en fljótlega tókst að slökkva eldinn og allt fór vel.

Lesa meira

 
Vaktstöð siglinga / stjórnstöðin 2007

25. jún. 2007 : Færeysku línuskipi vísað til hafnar

Mánudagur 25. júní 2007.
Landhelgisgæslan vísaði færeysku línuskipi til hafnar í Þorlákshöfn um helgina þar sem rannsakað var meint brot skipstjórans gegn íslenskri fiskveiðilöggjöf. Var skipstjórinn grunaður um að hafa veitt ólöglega á lokuðu svæði á Kötlugrunni.
Lesa meira
 
E36-hluti

21. jún. 2007 : Opinber rafræn sjókort

Í dag, 21. júní, er Alþjóðlegi sjómælingadagurinn. Á liðnu ári varð Alþjóðasjómælingastofnunin 85 ára. Af því tilefni samþykktu Sameinuðu þjóðirnar að gera þennan dag að Alþjóðlega sjómælingadeginum. Í ár er þema dagsins rafræn sjókort (Electronic Navigational Charts, ENC).

Lesa meira
 
Kort_syn040309

20. jún. 2007 : Áhöfnin á Syn stóð skipstjóra að meintum ólöglegum veiðum

Miðvikudagur 20. júní 2007.
Áhöfnin á Syn, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, stóð skipstjóra á fiskibát að meintum ólöglegum línuveiðum inni í lokuðu hólfi 7,8 sjómílur norðvestur af Deild um hádegisbilið í gær. Lesa meira
 
Æfing LHG með sérsveit RLS og Delta sveit norsku lögreglunnar

18. jún. 2007 : Landhelgisgæslan æfir með sérsveit Ríkislögreglustjórans og Delta sveit norsku lögreglunnar

Mánudagur 18. júní 2007.
Nýlega æfði Landhelgisgæslan með sérsveit Ríkislögreglustjórans og Delta sveit norsku lögreglunnar. Æfingin var haldin í Hvalfirði.

Lesa meira

 
Ægir og Syn - æfing sumarið 2007

14. jún. 2007 : Leitar- og björgunaræfingar

Fimmtudagur 14. júní 2007.
Áhafnir skipa og loftfara Landhelgisgæslunnar halda reglulega sameiginlegar æfingar í leit og björgun. Guðmundur St. Valdimarsson tók flottar myndir þegar áhöfn varðskipsins Ægis æfði annars vegar með áhöfn björgunarþyrlunnar Eirar og síðar sama dag með áhöfn eftirlitsflugvélarinnar Synjar.

Lesa meira
 
Nýr léttbátur í Ægi sumar 2007

14. jún. 2007 : Nýr léttbátur um borð í varðskipinu Ægi

Fimmtudagur 14. júní 2007.
Varðskipið Ægir hefur nú fengið nýjan léttbát og eru því samtals fimm léttbátar um borð í skipinu. Lesa meira
 
Líbanon 2007

13. jún. 2007 : Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar við mannúðarstörf í Líbanon á vegum Íslensku friðargæslunnar

Miðvikudagur 13. júní 2007.
Sprengjusérfræðingar frá Landhelgisgæslunni ásamt bráðatæknum frá Slökkviliði Reykjavíkur komu nýlega heim til Íslands eftir 3 mánaða verkefni í suðurhluta Líbanon. Lesa meira
 
Gylfi og Georg í Róm - heimsókn til FAO

12. jún. 2007 : Utanríkisráðuneytið styrkir baráttuna gegn ólöglegum fiskveiðum - Landhelgisgæslumaður að störfum í Róm

Þriðjudagur 12. júní 2007.
Utanríkisráðuneytið segir frá því í Stiklum að ráðuneytið kosti starf sérfræðings frá Landhelgisgæslunni við fjareftirlit með skipum og við rafrænar afladagbækur í fiskideild FAO í Róm.  Þar er einnig sagt frá heimsókn Georgs Kr. Lárussonar til FAO.
Lesa meira
 

12. jún. 2007 : Kajakræðarar fundust heilir á húfi eftir umfangsmikla leit

Þriðjudagur 12. júní 2007.
Tveir kajakræðarar sem leitað var að fundust heilir á húfi. Misskilingur varð þess valdandi að óttast var um þá. Lesa meira
 
Ísklifurkonur Líf Grænland 100607

11. jún. 2007 : Áhöfn Lífar sótti ísklifurkonur á Grænlandsjökul

Sunnudagur 10. júní 2007.
Björgunarþyrlan Líf flaug til Grænlands í gær til að sækja nokkrar vaskar konur sem höfðu verið þar við ísklifuræfingar. Flugvél þeirra hafði hlekkst á. Lesa meira
 

11. jún. 2007 : Björgunarþyrlan Líf flutti sérsveit Ríkislögreglustjórans vegna byssumanns í Hnífsdal

Laugardagur 9. júní 2007.
Föstudagskvöldið, 8. júní, var þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar kölluð út með bráðaútkalli, og beðið um flutning á sérsveitarmönnum Ríkislögreglustjórans vegna skotárásar í Hnífsdal.
Lesa meira
 
Gná - móttökuathöfn í flugskýli 7.6.07

08. jún. 2007 : Björgunarþyrlunni Gná fagnað

Föstudagur 8. júní 2007.
Björgunarþyrlan Gná kom til landsins sl. laugardag. Hún var leigð frá norska fyrirtækinu Norsk Helicopter í Stavanger.   Í gær var starfsmönnum Landhelgisgæslunnar og dómsmálaráðuneytisins boðið í móttökuathöfn í flugskýli Landhelgisgæslunnar þar sem Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra flutti erindi af þessu tilefni og Geirþrúður Alfreðsdóttir sagði frá þyrlunni og eiginleikum hennar. Lesa meira
 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica