Leit að þýsku ferðamönnunum haldið áfram - útkall vegna ferðamanna í sjálfheldu í Köldukvísl
Leit að tveimur þjóðverjum sem saknað hefur verið var haldið áfram í gær og í dag. Þyrlurnar Gná og Eir taka þátt í leitinni en Syn hefur séð um að flytja 20 björgunarsveitarmenn austur til Hornafjarðar. Eir þurfti í gær að fara í útkall á leið á leitarsvæðið vegna tveggja kvenna sem voru í sjálfheldu á þaki bíls í Köldukvísl. Lesa meira
Útköll vegna slasaðrar konu í Víti, ferðamanns í sjálfheldu í Tungnaá, og leit að þýskum ferðamönnum
Tvær hjálparbeiðnir bárust Landhelgisgæslunni í dag, annars vegar vegna tveggja þýskra ferðamanna sem saknað er og hins vegar vegna konu sem lent hafði í grjóthruni í Víti við Öskjuvatn. Lesa meira
Landhelgisgæslan sá um flugeldasýningu og öryggiseftirlit á sjó á menningarnótt
Mikill erill var um helgina hjá Landhelgisgæslunni. Landhelgisgæslan stjórnaði öryggismálum á sjó vegna menningarnætur og sá um flugeldasýningu í samstarfi við fleiri viðbragðsaðila. Lesa meira
Þrjár vélar Landhelgisgæslunnar á lofti á sama tíma vegna þriggja útkalla
Áhöfn landhelgisgæsluþyrlunnar Gnár sótti tvo sjúklinga út á haf í kvöld og fór eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, Syn, til fylgdar. Einnig sótti áhöfn þyrlunnar Eirar konu sem hafði fallið af hestbaki á Kjalvegi. Lesa meira
Mælingar við Surtsey frá 1967 - 2007
Miðvikudagur 8. ágúst 2007
Nýverið var mælingabáturinn Baldur við mælingar umhverfis Surtsey og eyjarnar norðaustur af henni en í ár eru 40 ár liðin frá fyrstu mælingum við eyjuna.
Lesa meira
