Fréttir

Fyrirsagnalisti

Sigríður Ragna_Upplýsingafulltrúi

26. sep. 2007 : Nýr upplýsingafulltrúi hjá Landhelgisgæslu Íslands

Sigríður Ragna Sverrisdóttir landfræðingur hjá Sjómælingum Íslands hefur tekið við starfi upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar, tímabundið til áramóta. Hún leysir af hólmi Dagmar Sigurðardóttur lögfræðing Landhelgisgæslunnar sem sinnt hefur starfi upplýsingafulltrúa meðfram starfi lögfræðings stofnunarinnar í nokkur ár. Lesa meira
 
Breskt seguldufl2

24. sep. 2007 : Fékk tundurdufl í dragnót

Skipstjóri dragnótarbátsins Sigga Bjarna GK 5 hafði samband við Vaktstöð siglinga og tilkynnti um sprengju í dragnótinni. Sprengjusérfræðingur LHG var kallaður til og eftir að hafa rætt við skipstjórann vaknaði grunur um að um tundurdufl væri að ræða. Lesa meira
 
Fallbyssuæfing á Ægi - apríl 2007.

19. sep. 2007 : Laus störf smyrjara og háseta hjá Landhelgisgæslunni

Miðvikudagur 19. september 2007.
Um þessar mundir er Landhelgisgæslan í leit að kraftmiklu og áhugasömu fólki til starfa um borð í varðskipum stofnunarinnar.   Lesa meira
 
Northern Challenge 2007

17. sep. 2007 : Almenn ánægja meðal þátttakenda á Northern Challenge

Mánudagur 17. september 2007.
Sprengjueyðingaræfingin Northern Challenge 2007 stóð frá 28. ágúst til 7. september sl. Almenn ánægja var meðal þátttakenda í æfingunni en alls tóku 50 sprengjusérfræðingar þátt í henni auk 20 erlendra gesta og dómara.

Lesa meira

 

17. sep. 2007 : Mannbjörg varð er leki kom að báti á Ísafjarðardjúpi

Sunnudagur 16. september 2007.
Fjórum mönnum var bjargað úr lekum báti á Ísafjarðardjúpi í kvöld. Lesa meira
 
Týr pólsk skúta 100907

10. sep. 2007 : Týr bjargar pólskri skútu

Varðskipið Týr kom pólskri skútu til bjargar í dag. Skútan var vélarvana með rifin segl. Hún var á leið frá Reykjavík til Vestmannaeyja og ætlaði síðan að koma við í Skotlandi á leið til Póllands. Lesa meira
 
Steinríkur björgunarþyrla

10. sep. 2007 : Þyrlan Steinríkur aftur leigð til Landhelgisgæslunnar

Þyrlan Steinríkur verður aftur leigð til Landhelgisgæslunnar. Hún er væntanleg til landsins í október. Lesa meira
 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica