Fréttir

Fyrirsagnalisti

Dash8_smidi_jun2008_1

23. jún. 2008 : Ný flugvél fyrir Landhelgisgæsluna afhent í Kanada

Mánudagur 23.júní 2008

Tímamót urði í smíði nýrrar eftirlitsflugvélar Landhelgisgæslunnar föstudaginn 20.júní sl.þegar vélin var afhent frá Bombardier, flugvélaverksmiðjunum í Toronto, sem smíðar flugvélina, til Field Aviation sem breytir henni í eftirlitsflugvél. Lesa meira
 

23. jún. 2008 : Hert eftirlit með fiskiskipum á eftirlitssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðiráðsins við Ísland

Mánudagur 23.júní 2008

Landhelgisgæslan hefur eins og undanfarin ár stundað eftirlit með karfaveiðum á Reykjaneshrygg, bæði innan og utan fiskveiðilögsögu Íslands. Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðiráðið (NEAFC) sem stjórnar veiðum á svæðinu hefur hert reglur um veiðarnar bæði hvað varðar aflamagn, veiðisvæði og tímabil veiðanna á mismunandi svæðum. Litið er á það sem alvarlegt brot ef upplýsingar um veiðar skipa aðildarríkja eru ekki aðgengilegar í gagnagrunni fiskveiðráðsins og er þá veiðileyfi viðkomandi skips ekki í gildi.

Á undanförnum vikum hefur Landhelgisgæslan sent fjölda tilkynninga til aðildarríkja fiskveiðiráðsins þar sem gerðar eru athugasemdir vegna skorts á upplýsingum m.a. tilkynningar um aflamagn þegar komið er inn á veiðisvæði, vikulegar aflaupplýsingar og tilkynningar um umskipun úti á hafi. Nokkrar aðildarþjóðir hafa komið þessum málum í lag í kjölfarið en aðrar ekki. Lesa meira
 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica