Fréttir

TF_LIF_naetursjonauki

26.8.2008 : Tíðar kvöld- og næturæfingar hjá flugdeild Landhelgisgæslunnar

Þriðjudagur 26.ágúst 2008

Nú þegar skyggja tekur eru kvöld- og næturæfingar áhafna þyrla Landhelgisgæslunnar hafnar. Um er að ræða æfingar í næturflugi með og án nætursjónauka. Þessar æfingar eru hluti af reglubundinni þjálfun hjá flugdeildinni og eru mjög mikilvægur hluti hennar, sem undirbúningur fyrir veturinn og skammdegið sem nú fer í hönd. Lesa meira
 
Vs_Aegir_gamli_Thor_biomyndataka_agust2008

26.8.2008 : Gamlir félagar hittast á ný - Vs Ægir og gamli Þór

Þriðjudagur 26.ágúst 2008

Varðskipið Ægir hitti gamlan félaga, fyrrverandi varðskipið Þór, við tökur á kvikmyndinni Whale watching massacre sem nú standa yfir. Skipin koma bæði fyrir í myndinni, auk þess sem Vs Ægir aðstoðar við tökur. Lesa meira
 
Vs_Aegir_Menningarnott_20082

26.8.2008 : Flugeldasýning á Sundunum á Menningarnótt - varðskipið Ægir

Þriðjudagur 26.ágúst 2008

Menningarnótt í Reykjavík, um nýliðna helgi lauk með glæsilegri flugeldasýningu á Ytri höfninni. Varðskipið Ægir tók þátt í sýningunni. Þrátt fyrir hvassviðri og rigningu framan af kvöldi, létti til og stillti er leið á kvöldið og þótti sýningin takast með endemum vel. Lesa meira
 
SAREX19082008gstv_(16)

25.8.2008 : Myndir frá æfingu LHG með Hercules flugvél bandarísku strandgæslunnar

Mánudagur 25.ágúst 2008

Meðfylgjandi myndir tók Guðmundur St. Valdimarsson á leitaræfingu sem varðskipið Ægir, þyrlan TF-GNA og Fokker flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SYN, tóku þátt í ásamt Hercules C-130 flugvél bandarísku strandgæslunnar í liðinni viku. Lesa meira
 
Hercules_flugvel_-_18._agust_2008_004

19.8.2008 : Herkúles flugvél bandarísku strandgæslunnar æfir með Landhelgisgæslunni

Mánudagur 18. ágúst 2008
Í morgun kl. 11 lenti Herkúles-flugvél bandarísku strandgæslunnar (C-130J) á Reykjavíkurflugvelli en vélin er hingað komin til að taka þátt í björgunaræfingu sem fram fer í vikunni með Landhelgisgæslu Íslands. Æfð verður björgun farþega skemmtiferðaskips sem lendir í áföllum á hafinu milli Íslands og Grænlands.

Lesa meira
 
Mannbjörg á Faxaflóa 3

15.8.2008 : Mannbjörg á Faxaflóa

Föstudagur 15. ágúst 2008


Um kl. 6:30 í morgun bárust Landhelgisgæslunni boð í gegnum Neyðarlínuna um að leki hefði komið að bátnum Eggja-Grími ÍS-702 sem er 6 tonna skemmtibátur. Báturinn var staddur á miðjum Faxaflóa. Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-EIR og björgunarbátar Slysavarnarfélagsins Landsbjargar voru send áleiðis. Einnig voru nærstödd skip beðin um að halda í átt til Eggja-Gríms, m.a. báturinn Happasæll KE-94 sem var nærstaddur.

Lesa meira

 

7.8.2008 : Landhelgisgæslan í aðgerðum gegn ítrekuðum brotum sjómanns gegn fiskveiðilöggjöf

Fimmtudagur 7.ágúst 2008

Í dag kom Landhelgisgæslan að kvótalausum bát norðvestur af Garðskaga. Umræddur bátur hefur ítrekað farið til veiða án aflaheimilda og hefur Landhelgisgæslan áður haft afskipti af bátnum. Starfsmenn Landhelgisgæslunnar eru um borð í bátnum og er honum siglt til lands, þar sem lögregluyfirvöld taka á móti bátnum og skipstjóra hans með viðeigandi hætti. Lesa meira
 
Umferdareftirlit_LHG_Logr040808

6.8.2008 : Landhelgisgæslan í samstarfi við Ríkislögreglustjóraembættið um umferðareftirlit

Miðvikudagur 6.ágúst 2008

Nú um liðna verslunarmannahelgi, tók Landhelgisgæslan þátt í umferðareftirliti ásamt Ríkislögreglustjóraembættinu. Þyrlur Landhelgisgæslunnar flugu með lögreglumenn við og eftir helstu þjóðvegum landsins. Eftirlitið, þótti gefast vel, góð yfirsýn fékkst yfir umferðina auk þess sem áhöfn vélarinnar var til taks, með lækni og lögreglumanni, þegar á þurfti að halda. Lesa meira
 
Eftirlit_Vilhelm_Thorst_hluti_afla_agust2008

5.8.2008 : Landhelgisgæslan við eftirlit með síldar- og makrílveiðum austur af landinu

Þriðjudagur 5.ágúst 2008

Varðskip hafa undanfarna daga verið við fiskveiðieftirlit með síldar- og makrílveiðiflotanum við austanvert landið. Eftirlitið hefur gengið vel og samstarf við áhafnir skipanna verið gott. Aflabrögð hafa verið þokkaleg. Lesa meira
 




þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.