Danska varðskipið Knud Rasmussen er væntanlegt til Reykjavíkur föstudaginn 26. september. Skipið er nýjasta skip danska flotans og er sérstaklega ætlað til siglinga á hafísslóðum.
Varðskipið verður opið almenningi laugardaginn 27. september milli kl. 13 og 16 þar sem það liggur við bryggju á Miðbakka.
Lesa meiraGeorg Kr. Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar tók á fimmtudag við formennsku í samtökunum North Atlantic Coast Guard Forum (NACGF), á ársfundi sem haldin var í Ilullisat á Vestur Grænlandi. Formennska Íslands í samtökunum felst í að stýra og móta stefnu hvað varðar öryggi á hafinu (Maritime security).
Lesa meiraVarðskipið Ægir og TF-SYN æfðu nýverið að kasta björgunarbát úr
flugvél undan Svalvogum. Gekk æfingin ágætlega og lenti báturinn
um 90 metrum frá belgjunum.
Lesa meiraAf gefnu tilefni vill Landhelgisgæslan vekja athygli á að alþjóðlega gervihnattakerfið Cospas-Sarsat mun hætta að vinna úr merkjum neyðarsenda 1. febrúar 2009 og hættir þar með móttöku og úrvinnslu merkja neyðarsenda á 121,5/243 MHz .
Hér má lesa grein sem þýdd er af heimasíðu Cospas-Sarsat og útskýrir nánar stöðu málsins og hvernig bregðast má við.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu www.cospas-sarsat.org
Lesa meiraHrafnhildur Brynja mun annast fjölmiðlatengsl Landhelgisgæslunnar, vefstjórn, útgáfu- og kynningarmál auk þess sem hún verður tengiliður vegna heimsókna og kynninga á starfseminni.
Lesa meiraFimmtudagur 4. september 2008
Samhliða æfingunni Norður-Víkingur æfði Landhelgisgæslan í gær löggæslu- og björgunarstörf á sjó, ásamt danska herskipinu HDMS Vædderen.
Æfingin fór fram á Faxaflóa en þátttakendur voru Brúarfoss sem lánaður var frá Eimskip, Flugdeild LHG, Varðskipið Ægir, HDMS Vædderen, Sprengjusveit LHG, Orion P3 og Vaktstöð siglinga. Alls tóku þátt í æfingunni um 140 manns.
Lesa meira
Þegar lögin tóku gildi sigldu öll erlend fiskiskip út fyrir mörkin nema togarar Breta. Hinn 1. september 1958 sendi breska ríkisstjórnin frá sér ítarlega greinargerð þar sem hún réttlætti íhlutun flotans. Ljóst var að það stefndi til átaka og reyndin varð sú að varðskipin Þór og María Júlía gripu til aðgerða gegn bresku freigátunni Eastbourne. Þar með hófust þau átök sem í daglegu tali eru nefnd Þorskastríðin.