Fréttir

TF_LIF_Odd_Stefan

30.11.2008 : Rjúpnaskyttu leitað í Árnessýslu

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst kl. 1522 á laugardag beiðni um að þyrla LHG yrði kölluð út til að taka þátt í leit að rjúpnaskyttu sem saknað var við Skáldabúðir í Laxárdal í Árnessýslu. Rjúpnaskyttunnar hafði verið saknað frá því um hádegi. Lesa meira
 

28.11.2008 : Aðventuhlaup Björgunarmiðstöðvarinnar í dag

Aðventuhlaup Björgunarmiðstöðvarinnar við Skógarhlíð fer í fyrsta skipti fram í dag, föstudaginn 28. nóvember. Hlaupið verður frá Skógarhlíð 14 kl. 12:00 og verða tvær vegalengdir í boði, 7 km (svokallaður flugvallarhringur) og 3,2 km. Lesa meira
 
Brestir_ReginTorkilsson

27.11.2008 : Villta vestrið við Íslandshrygg

Ákæruvaldið í Færeyjum rannsakar nú mál sem varða tvö færeysk fiskiskip sem grunuð eru um að hafa framið lögbrot í tengslum við fiskveiðar. Í báðum tilfellum hefur ákæruvaldið rökstuddan grun um að skipin hafi veitt ólöglega í íslenskri lögsögu með slökkt á fjareftirlitsbúnaði sem sýnir hvar skipin eru stödd. Í einum túrnum kastaði skipstjórinn á Bresti siglingatölvu skipsins í sjóinn á leið til lands. Lesa meira
 

27.11.2008 : Skrokkur tappatogara sekkur á leið til Hollands

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst síðastliðna nótt tilkynning frá togaranum Grétu (áður Margrét EA-71). Hafði þá skrokkur af gömlum togara, Guðrúnu Björgu HF-125, sem Gréta var að draga austur af Aberdeen í Skotlandi, sokkið. Var Gréta að draga togarann áleiðis til Hollands þegar hann byrjaði að sökkva og slitnaði þá taugin á milli skipanna. Lesa meira
 
Sjavarfallaalmanak_2009

27.11.2008 : Sjávarfallatöflur og almanak fyrir árið 2009 komið út

Sjómælingasvið Landhelgisgæslunnar hefur gefið út Sjávarfallatöflur og Sjávarfallalmanak fyrir árið 2009.

Í Sjávarfallatöflum er gefin upp áætluð hæð flóðs og fjöru í Reykjavík, Ísafirði, Siglufirði og Djúpavogi. Almanakið sýnir með línuriti útreiknaða hækkun og lækkun sjávar í Reykjavík fyrir hvern dag ársins.

Lesa meira
 

21.11.2008 : Danir yfirfara Lynx þyrlu í skýli LHG

Lynx þyrla af danska varðskipinu Triton kom í vikunni til viðhalds í skýli LHG á Reykjavíkurflugvelli. Fá flugvirkjar þeirra að nota aðstöðu Gæslunnar en um tíu manns fylgja þyrlunni. Mikil samvinna hefur ætíð verið á milli Landhelgisgæslunnar og varðskipa danska flotans sem eru við gæslustörf á hafinu umhverfis Grænland. Lesa meira
 
Vettvangur

20.11.2008 : Flugverndaræfing á Reykjavíkurflugvelli

Landhelgisgæslan tók í dag þátt í flugverndaræfingu sem fram fór á Reykjavíkurflugvelli. Var æfingin stór í sniðum en æft var eftir viðbragðsáætlun flugvallarins og látið reyna á mörg atriði sem upp geta komið. Lesa meira
 
Grimsnes4_

20.11.2008 : Björgunarskip komið með Grímsnes í tog

Björgunarskipið Oddur V. Gíslason var komið með taug í Grímsnes GK-555 kl. 17:04 og mun draga netabátinn til hafnar en Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst kl. 15:48 beiðni um aðstoð frá bátnum þar sem hann var vélarvana, með sjö manns um borð rúmlega 2 sml undan Sandvík á Reykjanesi. Lesa meira
 

20.11.2008 : Varðskip fær heimsókn verðandi stýrimanna

Varðskip Landhelgisgæslunnar fékk í morgun heimsókn sex nemenda stýrimannabrautar Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum. Nemendunum var kynnt starfsemi Landhelgisgæslunnar auk þess sem þeir fengu að sjá tæki og búnaður varðskipsins. Lesa meira
 
Grimsnes

19.11.2008 : Varðskip komið með Grímsnes í tog

Varðskip Landhelgisgæslunnar er nú komið með Grímnes GK-555 í tog undan Kötlutanga og eru á leið til Vestmannaeyja en vír slitnaði fyrr í dag þegar reynt var að koma línu yfir í bátinn. Að sögn skipherra er veður slæmt á svæðinu, 30-50 hnútar, gengur á með éljum og ölduhæð allt upp í sjö metra.  Lesa meira
 
Ægir tekur dýfu 3 mars 2007

19.11.2008 : Varðskip aðstoðar Grímsnes GK-555

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar bárust í morgun kl. 06:38 boð á rás 16 um aðstoð frá Grímsnesi GK-555 sem sagði bátinn strandaðan með níu manns um borð, á sandrifi 3,2 sjómílur NA af Skarðsfjöruvita. Komið hafði leki í sjókæli en ekki inn í skipið. Varðskipi Landhelgisgæslunnar var samstundis gert viðvart, þyrla kölluð út og haft var samband við báta á svæðinu. Lesa meira
 
Vardskip

17.11.2008 : Nauðsyn eftirlits- og gæslustarfa á hafi úti

Síðastliðinn föstudag kom glögglega í ljós nauðsyn þess að hafa varðskip Landhelgisgæslunnar við eftirlit og löggæslustörf á hafi úti. Varðskip LHG hafði samband við stjórnstöð LHG til að grennslast fyrir um skip á suðurleið undan Sandvík. Stjórnstöð taldi skipið vera við höfn í Reykjavík en við nánari eftirgrennslan kom í ljós að svo var ekki. Lesa meira
 
triton

14.11.2008 : Danska varðskipið Triton við æfingar með LHG

Danska varðskipið Triton kom til Reykjavíkur í byrjun vikunnar og nýtti tímann vel meðan á dvölinni stóð. Skipulagðar voru æfingar með Aðgerðasviði Landhelgisgæslunnar og tóku allar einingar sviðsins þátt í æfingunum þ.e. varðskip, flugdeild, sprengju- og köfunardeild. Stjórnstöð LHG í Skógarhlíð tók einnig virkan þátt sem sameiginlegur tengiliður þátttakenda í æfingunni. Lesa meira
 

14.11.2008 : Leikskólinn Rauðhóll í heimsókn

Það var áhugasamur hópur leikskólabarna af leikskólanum Rauðhóli sem heimsótti varðskipið Ægi í vikunni. Börnin skoðuðu varðskipið og voru frædd um það helsta sem fram fer um borð. Lesa meira
 
Slokkva_elda

13.11.2008 : Áhafnir æfa slökkvistörf

Áhafnir varðskipa Landhelgisgæslunnar og stýrimenn af flugvelli æfa þessa dagana slökkvistörf með Slökkviliðsmönnum á Keflavíkurflugvelli. Meðal annars fór æfingin fram á svæði sem kallast Pytturinn á Miðnesheiði. Lesa meira
 
Tyr_Aegir_Triton

12.11.2008 : LHG sigrar danska varðskipsmenn í fótboltaleik

Starfsmenn Landhelgisgæslunnar unnu kollega sína á danska varðskipinu Triton; 11-6 í vináttulandsleik í fótbolta sem fór fram á Þróttarvellinum í Laugardal í dag. Góður andi var á vellinum og starfsmenn LHG mjög sátt við frammistöðuna.   Lesa meira
 

12.11.2008 : Gullbergi VE-292 bjargað við Klettsnef

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst í morgun, kl. 06:28 útkall á rás 16 frá Gullberg VE 292 um að skipið væri vélarvana með tólf menn um borð við Klettsnef, utan við innsiglinguna til Vestmannaeyja.  Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kallaði samstundis út Björgunarfélagið í Vestmannaeyjum og Dráttarskipið Lóðsinn í Vestmannaeyjum sem brugðust hratt við. Ekki var talin þörf á þyrlu LHG. Lesa meira
 
Vardskip

10.11.2008 : Varðskip á sjó

Í morgun hélt Varðskip LHG úr höfn til gæslustarfa. Fer varðskipið í hefðbundinn túr og kemur til hafnar í lok nóvember. Lesa meira
 

5.11.2008 : Rekstrarsvið LHG hlýtur viðurkenningu

Rekstrarsvið Landhelgisgæslunnar hlaut í vikunni viðurkenningu Ríkiskaupa og Kreditkorta fyrir að tileinka sér rafrænt innkaupakerfi með notkun á innkaupakorti ríkisins og færslusíðu kerfisins. Lesa meira
 
TF-EIR

1.11.2008 : Fjögur útköll á fimmtán mínútum

Fjögur útköll bárust Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í dag á aðeins fimmtán mínútum. Beðið var um aðstoð þyrlu við að flytja mann sem fallið hafði í klettum í Hnappadal á Snæfellsnesi. Talið var að maðurinn væri ökla og viðbeinsbrotinn. Þyrla LHG, TF-EIR send á vettvang enda erfið aðkoma að slysstað og ekki unnt að flytja þann slasaða með öðrum leiðum. Lesa meira
 




þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.