Starfsmenn Landhelgisgæslunnar fengu í gærdag bréf frá Georg Kr. Lárussyni forstjóra þar sem útskýrðar eru þær aðgerðir sem gripið hefur verið til vegna samdráttar í rekstri stofnunarinnar.
Segir Georg í bréfinu að frá sl.hausti hafi verið leitað allra leiða til að hagræða í rekstri Landhelgisgæslunnar. Í janúar sl. var tilkynnt um fyrirhugaðar uppsagnir 20-30 starfsmanna Landhelgisgæslunnar. Í framhaldinu var leitað eftir samráði við stéttarfélög starfsmanna skv. lögum um hópuppsagnir. Í lok janúar var uppsögnum slegið á frest meðan leitað var annarra leiða til að komast hjá uppsögnum og samráðsferli með stéttarfélögum starfsmanna gefinn hæfilegur tími. Því samráðsferli er nú formlega lokið.
Lesa meira
Erfitt var að komast að slysstaðnum landleiðina og var því óskað eftir aðstoð þyrlunnar, sem sótti manninn og lenti með hann við Landspítalann í Fossvogi á áttunda tímanum í gærkvöldi.
Lesa meira
Vaktstöð siglinga - stjórnstöð Landhelgisgæslunnar mun frá 1. apríl nk. afgreiða fjarskipti tilkynningaskyldunnar á VHF frá öllum svæðum á samræmdri rás nr. 9.
Fjarskiptabúnaður stöðvarinnar hefur nú allur verið endurnýjaður. Sjófarendur eru eftir sem áður minntir á hlustvörslu á rás 16 - sem neyðar- og útkallsrás. Frá 1. mars verður hægt að nota rás 9 en gert er ráð fyrir eins mánaðar aðlögunartíma. Tekur breytingin að fullu gildi þann 1. apríl nk.
Lesa meira
BBC World sýndi mánudaginn 23. febrúar frétt og lengri þátt sem unninn var hér á landi um framtíðarhorfur á norðurslóðum. Efnið var unnið á meðan NATO ráðstefnan „Security Prospects in the High North“ stóð yfir í lok janúar.
Hér má sjá fréttina http://news.bbc.co.uk/2/hi/europe/7905132.stm
Brian Hanrahan og Simon Smith frá BBC heimsóttu Landhelgisgæsluna og fengu kynningu á starfsemi stjórnstöðvar og mikilvægi þeirrar eftirlits- og öryggisstarfsemi sem þar er sameinuð.
Lesa meira
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst kl. 14:07 beiðni frá Fjarskiptamiðstöð Lögreglunnar um að þyrla Landhelgisgæslunnar yrði kölluð út vegna sprengingar sem varð í kartöfluverksmiðju í Þykkvabæ. Staðfest var að tveir menn væru alvarlega slasaðir.
Þegar útkallið barst var TF-EIR við æfingar á ytri höfninni. Kom þyrlan strax inn til lendingar á Reykjavíkurflugvelli, sótti þyrlulækni og fór í loftið að nýju kl. 14:29. Var hún var komin á slysstað kl. 14:55.
Lesa meira
Auðlindir og gæsla á Norður Atlantshafi, vaxandi skipaferðir, auðlindanýting auk flutninga á sumrin milli Atlantshafsins og Kyrrahafsins voru á meðal þess sem rætt var í málstofu Samtaka um vestrænnar samvinnu (SVS) og Varðbergs í gær.
Frummælendur voru Björn Bjarnason, fyrrv. dómsmálaráðherra og alþm., Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar og alþm., Ingibjörg Jónsdóttir, dósent við jarðvísindadeild Háskóla Íslands og Kristján Geirsson, deildarstjóri á sviði umhverfisgæða hjá Umhverfisstofnun. Erindi þeirra má sjá hér á síðunni.
Lesa meiraFyrir skömmu var haldin á Reyðarfirði, sameiginleg eldvarnar- og reykköfunaræfing Landhelgisgæslunnar og slökkviliðs Fjarðarbyggðar. Einnig tóku þátt tveir leiðbeinendur frá Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins.
Æfingin fór fram í varðskipi LHG, var hún tvískipt og tók um níu klukkustundir.
Lesa meiraHaft var samband við Umhverfisstofnun og að því loknu var skipið beðið um að skipta um ballest áður en það kom inn í efnahagslögsöguna. Varð skipstjóri British Tranquility við því. Þegar skipið kemur til hafnar í Reykjavík mun Siglingastofnun fara um borð í skipið og sannreyna að skipið hafi farið eftir leiðbeiningum vaktstjóra í stjórnstöð LHG.
Lesa meira
Í dag er hinn árlegi 112 dagur haldinn hátíðlegur en að þessu sinni er sérstök áhersla lögð á að vekja athygli grunnskólabarna á því víðtæka öryggis- og velferðarneti sem þau hafa aðgang að í gegnum neyðarnúmerið ef eitthvað bjátar á.
Tveir bekkir níu ára bekkir úr Háteigsskóla, 4-SÓ OG 4-IRB komu í heimsókn til Landhelgisgæslunnar og kynntu sér starfsemi varðskipanna og flugdeildar.
Lesa meira
Vaktstöð siglinga / stjórnstöð LHG tekur á móti komutilkynningum skipa til hafna á Íslandi. Sú breyting átti sér stað þann 8. maí 2008 að ný tilskipun Evrópusambandsins um að svokallað Safe Sea Net tilkynningakerfi tók gildi.
Framvegis yrði Safe Sea Net notað við skráningar komutilkynninga en til þess tíma var notað ákveðið rafrænt eyðublað sem hægt var að nálgast á heimasíðu Landhelgisgæslunnar.
Lesa meira