Fréttir

Fyrirsagnalisti

Gaeslan2

27. feb. 2009 : Aðgerðir LHG vegna samdráttar í rekstri útskýrðar í bréfi til starfsmanna

Starfsmenn Landhelgisgæslunnar fengu í gærdag bréf frá Georg Kr. Lárussyni forstjóra þar sem útskýrðar eru þær aðgerðir sem gripið hefur verið til vegna samdráttar í rekstri stofnunarinnar.

Segir Georg í bréfinu að frá sl.hausti hafi verið leitað allra leiða til að hagræða í rekstri Landhelgisgæslunnar. Í janúar sl. var tilkynnt um fyrirhugaðar uppsagnir 20-30 starfsmanna Landhelgisgæslunnar. Í framhaldinu var leitað eftir samráði við stéttarfélög starfsmanna skv. lögum um hópuppsagnir. Í lok janúar var uppsögnum slegið á frest meðan leitað var annarra leiða til að komast hjá uppsögnum og samráðsferli með stéttarfélögum starfsmanna gefinn hæfilegur tími. Því samráðsferli er nú formlega lokið.

Lesa meira
 
TF-EIR

27. feb. 2009 : TF-EIR kölluð út vegna fjórhjólaslyss

Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-EIR var kölluð út um kl. 18:20 á fimmtudagskvöld þar sem karlmaður slasaðist og missti meðvitund í fjórhjólaslysi í Skorradal.

Erfitt var að komast að slysstaðnum landleiðina og var því óskað eftir aðstoð þyrlunnar, sem sótti manninn og lenti með hann við Landspítalann í Fossvogi á áttunda tímanum í gærkvöldi.

Lesa meira
 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica