Björgunarsveitarfólk Slysavarnarfélagsins Landsbjargar fluttu konu sem slasaðist í Skessuhorni á börum niður þverhníft bjarg að snjóbíl sem síðan flutti hana að stað þar sem hægt var að síga niður og flytja um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar TF-GNA. Klukkan 21:54 í kvöld var hin slasaða komin um borð í þyrluna og var þá haldið á Borgarspítalann í Fossvogi þar sem lent var kl. 22:09.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út um klukkan tvö í dag. Fór þyrlan í loftið um hálftíma síðar með undanfara Slysavarnarfélagsins Landsbjargar af höfuðborgarsvæðinu.
Skólaskipið Gorch Fock lagði að Miðbakka kl. 10:00 í morgun. Liður í heimsókn skipsins er að heilsa upp á stofnanir, s.s. hafnar- og borgarstjóra, lögreglustjóra, Landhelgisgæsluna og Varnarmálastofnun.
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar tók á móti gestunum um hádegisbil og átti með þeim stuttan fund áður en haldið var til hádegisverðar um borð í skipið.
Lesa meiraÞýska skólaskipið Gorch Foch liggur nú við akkeri út á ytri
höfninni í Reykjavík en skipið kemur að Miðbakka kl 10:00 í fyrramálið.
Meðan skipið liggur við bryggju í Reykjavík mun áhöfn og liðsforingjaefni m.a. heimsækja Landhelgisgæsluna, hafnarstjóra, borgarstjóra, lögreglustjóra og forstjóra Varnarmálastofnunar.
Um helgina verður skipið opið almenningi milli kl. 14:00-17:00.
Lesa meira
Sören Gade, varnarmálaráðherra Danmerkur, átti í morgun fund með Georgi Lárussyni, forstjóra Landhelgisgælunnar þar sem öryggismál á Norður-Atlantshafi voru rædd. Gade sér mikil tækifæri í nánari samvinnu við Landhelgisgæsluna, ekki síst með tilliti til opnunar siglingaleiða á Norður-Íshafi. Þá viðraði varnarmálaráðherrann þann möguleika að Landhelgisgæslan taki þátt í eftirliti á hafinu við Grænland og Færeyjar þegar Landhelgisgæslan tekur nýja Dash-8 flugvél í notkun.
Lesa meira
Aukið samstarf Landhelgisgæslunnar og bandarísku strandgæslunnar ásamt mikilvægi þess, var rætt á fundi Georgs Kr. Lárussonar, forstjóra Landhelgisgæslunnar og Dale Gable aðmíráls hjá bandarísku strandgæslunni í liðinni viku. Einnig fóru aðilar bandarísku strandgæslunnar um borð í varðskip LHG og fengu kynningu á starfsemi stjórnstöðvar.
Samkvæmt yfirlýsingu þjóðanna munu strandgæslan og Landhelgisgæslan styrkja samstarf sitt enn frekar, svo sem við leit og björgun, stjórn á siglingum, mengunareftirlit á hafinu og almenna öryggisgæslu. Þá er einnig gert ráð fyrir sameiginlegri þjálfun og menntun starfsmanna eftir því sem nauðsynlegt er til að treysta samstarfið sem best.
Í dag fór flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SYN í ískönnunarflug úti fyrir Vestfjörðum. Kl. 1211 var komið að nýmyndun hafíss á stað 67-20N-025-50V og henni fylgt til SV. Hin eiginlega hafísrönd sást ekki, eingöngu var um nýmyndun að ræða og náði um 10 sjómílur austan við línu á kortinu. Sjá pdf. skjal.
Lesa meira
Danska varðskipið EJNAR MIKKELSEN P 571 kom til Reykjavíkur sl. laugardag en skipið er systurskip varðskipsins KNUD RASMUSSEN P 570 sem heimsótti LHG í september sl. og var þá opið almenningi. Skipin eru nýjustu skip danska flotans og sérstaklega ætluð til siglinga á hafísslóðum. Um borð er 12 m langt björgunarskip sem sjósett er úr skutrennu skipsins (SAR vessel). Var björgunarskipið SAR 2 prófað í Reykjavíkurhöfn í dag.
Lesa meira
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, mars