skipið lagði að bryggju við Faxagarð klukkan 9:30 í morgun. Hleypt var af þremur fallbyssuskotum við komuna og stóðu starfsmenn Landhelgisgæslunnar heiðursvörð á Faxagarði. Tilefnið var að skipherrann á Ægi, Kristján Þ. Jónsson var að koma úr sinni síðustu skipherraferð en hann lætur af störfum nú um mánaðamótin. Auk hans eru tveir aðrir starfsmenn, þeir Benedikt Svavarsson yfirvélstjóri og Hafsteinn Jensson smyrjari að láta af störfum og voru starfsmenn Landhelgisgæslunnar að heiðra félaga sína með þessum hætti. Hafa þeir félagar starfað í hvorki meira né minna en níutíu ár hjá Landhelgisgæslunni.
Lesa meira
Árni Þ. Vésteinsson deildarstjóra kortadeildar sjómælingsviðs Landhelgisgæslunnar ritar í skýrsluna stutta grein og nefnist hún „Surveying and charting the Surtsey area from 1964-2007.“
Lesa meira
danska varðskipinu Knud Rasmussen austur af Nolsoy í Færeyjum. Landhelgisgæslan og danski sjóherinn hafa á síðustu árum átt náið samstarf á ýmsum sviðum, þ.á.m. við þjálfun áhafna. Varðskipið Knud Rasmussen er nýlegt skip, tekið í notkun árið 2008, er nú unnið að því að gera áhöfn varðskipsins virkari í aðstoð við skip á hafi úti og fólst æfingin að þessu sinni í björgun úr eldsvoða um borð í skipi (íslenska varðskipið í þessu tilfelli) þar sem skipverjar voru týndir og slasaðir. Var skipið að björgun lokinni tekið í tog.
Lesa meira
Varðstjórar í Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar sátu í vikunni námskeið í flugumsjón sem haldið var af hjá Þórarni Inga
Ingasyni flugstjóra. Tilgangur námskeiðsins var meðal annars að auka þekkingu starfsmanna stjórnstöðvar LHG á kröfum flugdeildar LHG, sem fram koma í flugrekstrarhandbók flugdeildarinnar.
Þar má nefna skyldur stjórnstöðvar í neyðartilfellum, grunnþekking í veðurfræði, lágmarkskröfur til æfinga á þyrlum, ferilvöktun á þyrlum í flugi, gerð á flugplani, umræða um verklög sem unnið er eftir í hinum ýmsu tilfellum, og almennur undirbúningur fyrir starfsmenn stjórnstöðvarinnar til að takast á við þau fjölbreytilegu tilfelli sem geta skapast við undirbúning útkalla sem og í útköllunum sjálfum.
Lesa meiraNeyðarsendir á tíðninni 406 MHz varð til þess í nótt að skjótt var brugðist við og vel tókst til við að bjarga tveimur skipbrotsmönnum sem komust í gúmbjörgunarbát þegar bátur þeirra, Herdís SH-145 brann og sökk um 16,5 sjómílur NV- Bjargtöngum.
Ekkert neyðarkall barst frá bátnum, hvorki í sjálfvirka tilkynningakerfinu, í gegnum talstöð eða síma. Skipbrotsmennirnir náðu að ræsa neyðarsendi um borð í björgunarbátnum sem sendi frá sér Cospas-Sarsat neyðarskeyti á 406 MHz. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar brást við og sá nær samstundis staðsetningu neyðarskeytisins.
verður afhent eftir nokkrar vikur og hafa starfsmenn Landhelgisgæslunnar þegar hafið þjálfun á nýju vélina. Dvöldu stýrimenn hjá sænsku strandgæslunni þar sem þeir hlutu þjálfun en flugvirkjar hafa verið hjá SAAB, sem annast viðhald á eftirlitsflugvélum sænsku strandgæslunnar sem eru sömu tegundar og með sama búnaði og ný flugvél Landhelgisgæslunnar. Einnig hafa flugmenn verið við þjálfun í Kanada.
Lesa meira
Sprengjusveit Landhelgisgæslunnar tók á síðastliðnu ári að sér umfangsmikið hreinsunarverkefni fyrir Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, á svæði sem varnarliðið notaði til æfinga allt frá seinni heimstyrjöldinni til brotthvarfs þeirra árið 2006.
Svæðið er í daglegu tali kallað Patterson svæðið en það er um 12 ferkílómetrar að stærð eða 5,6 kílómetrar að lengd og 2 kílómetra breitt.
Lesa meira
æfingin er hluti af verkefni bandalagsþjóða NATO sem staðið hefur í mörg ár. Æfingin er einnig opin öðrum þjóðum í gegn um samstarfið „Partnership for Peace“. Að þessu sinni voru æfð viðbrögð við tveimur flugatvikum sem upp komu vegna eldgoss í Öskju.
Lesa meira
með Georg Kr. Lárussyni, forstjóra Landhelgisgælunnar ásamt Ian Whitting, sendiherra Breta á Íslandi. Er þetta í fyrsta sinn sem Íslendingar fá varnarmálafulltrúa sem tengilið hjá bresku þjóðinni. Á fundinum voru meðal annars rædd öryggis- og björgunarmál á Norður-Atlantshafi og breyttar áherslur í starfi strandgæslna og sjóherja þar sem aukið samstarf og sameinaðir kraftar eininganna skila árangri. Ný eftirlits- og björgunarflugvél og fjölnota varðskip Landhelgisgæslunnar voru kynnt fyrir Summerfield sem sér fjöldamörg tækifæri í nánari samvinnu við Landhelgisgæsluna.
Lesa meira
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst í gær kl. 14:06 kall á rás 16 frá skemmtibát sem strandaður var á Geirsnefi. Beiðni kom um aðstoð við að vera dregnir á flot en fjórir menn voru um borð í bátnum.
Skömmu síðar kom tilkynning um að stjórnandi bátsins hefði strokið frá borði.
Lesa meira
nýtt rafrænt sjókort fyrir Snæfellsnes. Hafa þá verið gefin út 22 íslensk rafræn kort í ýmsum mælikvörðum. Tilkoma rafrænna sjókorta hefur fyrst og fremst í för með sér aukið öryggi fyrir skip og áhafnir þeirra en samkvæmt reglum um björgunar og öryggisbúnað íslenskra skipa þarf sérhvert skip yfir sex metrum að hafa um borð nýjustu útgáfu nauðsynlegra sjókorta, rafræn eða lögleg prentuð sjókort.
Lesa meira
Landhelgisgæslunnar boðið til hádegisgrillveislu í flugskýli Gæslunnar á Reykjavíkurflugvelli. Tilefni veislunnar var meðal annars góð frammistaða og árangur starfsmanna að undanförnu í erfiðum og krefjandi verkefnum þar sem samstarf og útsjónarsemi, hvort sem er í áhöfnum varðskipa, loftfara, í stjórnstöð eða annars staðar, hefur sýnt sig með skýrum hætti. Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar flutti ávarp við tilefnið en hann er nýkominn frá sjósetningu Þórs - hins nýja fjölnota varðskips í Chile.
Lesa meira
Kajakklúbburinn hélt um helgina sína árlegu sumarhátíð við Geldinganes og var af því tilefni ákveðið, í samráði við Landhelgisgæsluna, að æfa þyrlubjörgun á sjó.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-EIR sveif um hádegi á laugardag yfir svæðið og staðnæmdist fyrir ofan kajakræðara sem reyndu það að vera undir háværum spöðum þyrlunnar.
Lesa meira
tveggja nýrra hafnakorta. Kortin eru af hafnarsvæði Tálknafjarðar og Bíldudals og byggja á dýptarmælingum Sjómælingasviðs og Siglingingastofnunar. Kortin tilheyra nýrri kynslóð hafnarkorta en frá árinu 1997 þegar útgáfa korta í þessum flokki hófst hafa verið gefin út 23 kort.
Lesa meira
flugdeild Landhelgisgæslunnar í vikunni. Heimsóknin hófst í þeim hluta sem kallast flugumsjón þar sem þyrluáhafnir fara yfir þau verkefni og flug sem framundan eru. Greinilegt var að heimsóknin vakti mikla ánægju hjá þessu smávaxna flugáhugafólki.
Lesa meira
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, mars