og hálendiseftirlit með lögreglunni á Hvolsvelli. Fyrirhugað var um tveggja klukkustunda flug og var farið í loftið frá Reykjavíkurflugvelli um kl. 16:00. Vegna ýmissa atvika og mikils fjölda fólks og farartækja á leiðinni teygðist allverulega úr fluginu sem stóð fram yfir miðnætti. Kom þyrlan meðal annars að erlendum ferðamönnum, tólf manna fjölskyldu sem var rammvillt í bifreið á Markarfljótsaurum.
Lesa meira
Sprengjusveit Landhelgisgæslunnar hefur haft í mörg horn að líta síðastliðnar vikur en fyrir utan þeirra daglegu störf höfðu þeir rétt fyrir helgi farið í tíu útköll á tíu dögum þar sem meðal annars fannst tundurdufl, dýnamít á víðavangi, sprengjur á hafsbotni og í fjallshlíðum.
Síðasta útkallið barst á fimmtudag þegar sprengjusérfræðingar voru kallaðir til þegar göngufólk fann sprengju við Geithúsárgil í Reyðarfirði þar sem áður var æfingasvæði breskra hermanna í síðari heimsstyrjöld.
Lesa meira
um Neyðarlínuna 112 þar sem óskað var eftir aðstoð þyrlu við björgun á Langjökli. Hafði einstaklingur fallið niður í sprungu og var beðið um að undanfarar frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu á höfuðborgarsvæðinu kæmu með í þyrlunni. Voru jafnframt boðaðar út björgunarsveitir í Borgarfirði og á Akranesi. Flutti TF-LÍF, þyrla Landhelgisgæslunnar undanfarana á slysstaðinn og flutti að björgun lokinni hinn slasaða á Landspítalann.
Lesa meira
mikilvæg í eftirliti, öryggis-, og löggæslu á hafsvæðinu umhverfis Ísland. Varðskipið Ægir kom í lok vikunnar til hafnar eftir að hafa verið við gæslu- og eftirlit á Suðvestur-, Vestur- og Vestfjarðamiðum fram að sjómannadegi. Var þá haldið til gæslu á Norðvestur- og Norðurmiðum austur af Grímsey. Farið var til eftirlits í þrjátíu íslensk skip.
Lesa meira
Togarinn er staddur á Reykjaneshrygg eða um 180 sjómílur undan Reykjanesi. Sigldi togarinn á fullri ferð til lands, til móts við þyrluna.
Lesa meira
beiðni um aðstoð frá íslenskri skútu sem stödd var fyrir utan höfnina á Patreksfirði með bilaða vél og treysti sér ekki inní höfnina á seglunum. Óskaði skútan eftir aðstoð við að komast til hafnar.
Lesa meira
seglskútan þá skeytt á á skeri og sett neyðarbauju í gang. Ekki kom strax fram hvar báturinn var, en hann sagðist ætla til Stykkishólms. Neyðarskeyti tóku að berast stjórnstöð í gegn um Cospar Sarsat kerfið. Reyndist báturinn vera milli Norðureyjar og Kjóeyjar, um 7 sjómílur NA af Stykkishólmi. Kallaðar voru út allar björgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á svæðinu auk þyrlu Landhelgisgæslunnar, einnig var kallað til báta á svæðinu.
Lesa meira
varnarmálafulltrúa Frakka fyrir Ísland, Hr. Patrick Giraud-Charreyron komu í heimsókn til Landhelgisgæslu Íslands í morgun. Frú Caroline Dumas afhenti forseta Íslands trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum í lok maí mánaðar.
Georg Kr. Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar tók á móti gestunum ásamt Ásgrími L. Ásgrímssyni yfirmanni stjórnstöðvar/vaktstöðvar siglinga og Gylfa Geirssyni forstöðumanni fjarskiptaþróunar.
þremur aðskildum aðilum, tveimur sjófarendum og einum aðila á landi sem urðu varir var við reyk Austur af Garðskaga. Ekki er vitað um skip eða báta á þessum slóðum og er því talið nauðsynlegt að kanna málið nánar.
Lesa meira
Föstudaginn 5. júní lagðist varðskipið Ægir að bryggju á Flateyri til að taka þátt í hátíðarhöldum helgarinnar. Strax um kvöldið æfði áhöfnin fyrir róðrakeppnina og var það eina æfingin sem tekin var. Á laugardeginum var farið í skemmtisiglingu með Flateyringa og nærsveitamenn, alls komu um 150 manns með og var almenn ánægja með þessa siglingu. Um kvöldið var skipherranum, yfirstýrimanni, 2. stýrimanni, yfirvélstjóra og 1. vélstjóra boðið í mat hjá Eyrarodda og sjómannadagsráði og var það mikil og góð veisla. Á sjálfan Sjómannadaginn tók áhöfn varðskipsins virkan þátt í hátíðarhöldunum, m.a. með ritningarlestri í hátíðarmessu, þátttöku í kappróðri, reipitogi í karlaflokki og kvennaflokki (Linda háseti keppti með kvennaliði Flateyrar) og sigruðu varðskipsmenn og konur í báðum flokkum. Einnig tók áhöfnin þátt í flekahlaupi og koddaslag. Varðskipsmenn/kona unnu í róðrakeppninni og reipitogi. Góður rómur var gerður að aðkomu varðskipsmanna meðal bæjarbúa og var áhöfn Ægis hæst ánægð með hátíðarhöld helgarinnar og kunna Flateyringum góðar þakkir.
Landhelgisgæslu Íslands boðið í heimsókn um borð í norska varðskipið Harstad ásamt Rögnu Árnadóttur dóms- og kirkjumálaráðherra og Þórunni J. Hafstein settum ráðuneytisstjóra í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu. Skipherra Harstad tók á móti gestunum ásamt áhöfn sinni og snæddur var hádegisverður um borð. Í erindi sem Georg Kr. Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar flutti við tilefnið ræddi hann um samstarf Landhelgisgæslunnar og norsku strandgæslunnar og mikilvægi þess að starfsmenn vinni saman á grundvelli samstarfssamnings sem undirritaður var í október síðastliðnum, Að þjóðirnar að skiptist á upplýsingum og vinni sameiginlega að þjálfun á því víðfema hafsvæði sem N-Atlantshafið er.
Lesa meira
Landhelgisgæslunnar TF-LÍF voru í dag við björgunaræfingar á Faxaflóa. Harstad er hér á landi í boði Landhelgisgæslunnar en skipið er nær systurskip íslenska varðskipsins Þórs sem er í smíðum í Chile. Harstad og Þór eru öflug björgunar- og dráttarskip og var afar gagnlegt fyrir starfsmenn Landhelgisgæslunnar sem og starfsmenn ýmissa innlendra samstarfsstofnana að fylgjast með hvernig búnaður varðskipsins starfar. Ekki fer á milli mála að varðskip eru þau björgunartæki sem öflugust eru til sjávar.
Lesa meira
mikilvægi þess fyrir Landhelgisgæsluna að hafa yfir öflugu björgunar- og dráttarskipi að ráða sýndi sig berlega í eftirmiðdaginn þegar varðskipið Týr dró togarann Sóley Sigurjóns af strandstað í innsiglingunni í Sandgerði með aðstoð norska varðskipsins Harstad. Norska varðskipið Harstad er statt er hér við land á grundvelli samstarfssamnings við Landhelgisgæsluna. Einnig voru dráttarbátar á staðnum til að halda við togarann ásamt björgunarskipi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Hannesi Þ. Hafstein.
Lesa meira
tilkynning um að togarinn Sóley Sigurjóns GK-200 hafi strandað í innsiglingunni til Sandgerðis. Varðskipið Týr var kallað á staðinn og kom að strandstað kl. 06:25. Skipið sat fast og hallaði mikið eða 35° á stjórnborða. Björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, Hannes Þ. Hafstein var einnig kallað á staðinn. Fimm manns frá skipinu voru ferjaðir í land og engin hætta á ferðum. Norska varðskipið Harstad er á leið á staðinn og verður til taks ef á þarf að halda.
Lesa meira
gærkvöldi eftir að grænlenski togarinn Polar Nanoq hafði samband við Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og óskaði eftir aðstoð þyrlunnar. Um borð væri 48 ára færeyskur maður, grunur lék á að hann væri með innvortis blæðingar. Þyrlulæknir ræddi við skipstjóra og talið var nauðsynlegt að sækja manninn. Polar Nanoq snéri samstundis við á hélt á fullri ferð til móts við þyrluna en togarinn var staðsettur um 188 sjómílur SV af Reykjanesi.
Lesa meira
þegar portúgalska farþegaskipið FUNCHAL hafði samband við Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og óskaði eftir að 67 ára gömul veik kona yrði sótt um borð í skipið. Að mati þyrlulæknis var talið nauðsynlegt að sækja konuna. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LIF fór frá Reykjavik kl. 04:06 og var komin að skipinu kl. 05:25 um 85 sjómílur SA af Vestmannaeyjum.
Lesa meira
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, mars