verið í vandræðum í um sólarhring, fyrst við 200 sml mörkin SV af Reykjanesi. Var skútan á leið frá Grænlandi til Íslands. Á föstudag barst frá skútunni CosparSarsat skeyti á 406MHz, var hún með brotið mastur og orðin tæp á olíu. Morguninn eftir var að nýju beðið um aðstoð og fór þá Baldur til aðstoðar. Von er á skútunni til Reykjavíkur á sunnudagskvöld.
Lesa meira
Varðskipið Ægir kom nýverið til hafnar í Reykjavík eftir að hafa
verið við eftirlit-, öryggis- og löggæslu á Íslandsmiðum. Í tveimur síðustu ferðum hefur áhöfn varðskipsins alls farið til eftirlits um borð í 54 skip og báta. Við eftirlit eru könnuð réttindi áhafna, haffærisskírteini og önnur leyfi. Einnig er farið yfir veiðarfæri, afli mældur og gengið úr skugga um að björgunar- og öryggisbúnaður sé í lagi svo eitthvað sé nefnt.
Eftirlit varðskipsins leiddi til þess að gefa þurfti út ellefu kærur og sautján áminningar. Einnig voru gefnar út átta skyndilokanir í samráði við vakthafandi fiskifræðing Hafrannsóknastofnunar.
Lesa meira
Landhelgisgæslunnar í gær sást olíumengun á Faxaflóa með tækjabúnaði eftirlitsflugvélarinnar sem kallast „Side Looking Radar“ ( SLAR). Gerir búnaðurinn vélinni kleift að staðsetja mengun, greina hvers eðlis mengunin er, stærð svæðisins, þykkt olíunnar og magn. Búnaður sem þessi veldur gjörbreytingu í auðlindagæslu og umhverfisvernd.
Lesa meira
stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar/ vaktstöðvar siglinga. Eftir að strandveiðar hófust hafa 300-400 bátar í flota landsmanna bæst við þá umferð sem áður var afgreidd hjá stjórnstöðinni sem nú vaktar um 700 skip og báta daglega. Þegar við bætast útköll eða önnur aðstoð margfaldast álagið. Sem dæmi má nefna daginn í dag þar sem fjögur útköll bárust ofan á aðra starfsemi.
Lesa meira
löggæslu og umferðareftirliti úr lofti. Fylgst er með ökumönnum á þjóðvegum landsins sem og í óbyggðum. Um helgina var farið í tvö eftirlitsflug þar sem höfð voru afskipti af sex ökumönnum í allt en að öðru leyti voru ökumenn til fyrirmyndar.
Lesa meira
eftir að Neyðarlínan hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og bað um aðstoð þyrlunnar vegna slyss sem varð þegar maður féll 3-4 metra af húsþaki á Barðaströnd. Var maðurinn meðvitundarlaus þegar læknir kom á staðinn um hálftíma eftir slysið.
Lesa meira
beiðni um aðstoð frá strandveiðibáti með einn mann um borð sem staddur var við Vestrahraun á Faxaflóa eða um 22 sjómílur Vestur af Reykjavík, hafði báturinn fengið netadræsu í skrúfuna. Kallaði stjórnstöð út Björgunarskipið Ásgrím S. Björnsson sem fór til aðstoðar og dró bátinn til lands. Komið var til Reykjavíkur um kl. 19:00 í kvöld.
Lesa meira
TF-SIF, ný eftirlits- og björgunarflugvél Landhelgisgæslu Íslands kom til landsins í gær, á 83 ára afmælisdegi Landhelgisgæslunnar.
Hér á heimasíðunni má nálgast myndir frá komu vélarinnar, auk mynda frá afhendingu hennar í Kanada og tæknilegra upplýsinga um vélina.
Starfsmenn Landhelgisgæslunnar og aðrir gestir komu saman í flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli í gær og voru viðstaddir komu vélarinnar. TF-SIF flaug lágflug yfir flugbrautina ásamt tveimur þyrlum Landhelgisgæslunnar, TF-LIF og TF-GNÁ.
Lesa meira
SIF lendir á Reykjavíkurflugvelli í dag, miðvikudaginn 1. júlí kl. 15:00, á afmælisdegi Landhelgisgæslunnar.