Yfirmenn öryggismála í utanríkisþjónustum allra Norðurlandanna sem staddir eru hér á landi vegna árlegs fundar þeirra, heimsóttu Landhelgisgæsluna í gær, fimmtudag. Var tekið á móti yfirmönnunum í flugskýli Landhelgisgæslunnar þar sem þeir kynntu sér fjölbreytta starfsemi Landhelgisgæslunnar, tækjakost hennar og víðtækt samstarf við nágrannaþjóðir á ýmsum sviðum. Auðunn Friðrik Kristinsson yfirstýrimaður kynnti meðal annars TF-SIF, nýju eftirlits og björgunarflugvél Landhelgisgæslunnar. Voru gestirnir sérlega áhugasamir um getu og möguleika TF-SIFJAR, bæði með tilliti til eftirlits og björgunar en einnig veltu þeir upp hugmyndum um möguleika á að nýta flugvélina til loftrýmisgæslu.
samkvæmt nýrri könnun MMR – Markaðs og miðlarannsókna ber meirihluti landsmanna mikið traust til Landhelgisgæslunnar eða alls 77,6% svarenda.Eru þetta afar ánægjuleg tíðindi sem staðfesta að Landhelgisgæslan skipar ákveðinn sess í huga þjóðarinnar og undirstrika um leið mikilvægi verkefna hennar.
Lesa meira
farið var í gærkvöldi og nótt sáust 12 japönsk túnfiskveiðiskip að veiðum rétt utan íslensku efnahagslögsögunnar sem dreifðust frá 17. – 25 lengdargráðu.
Lesa meira
grænlenska togskipinu Qavak þar sem það var vélarvana um 200 sjómílur suð-vestur af Reykjanesi með fjóra menn í áhöfn. Að sögn skipherra gekk vel að koma dráttarlínu yfir í Qavak og er reiknað með að Ægir komi með skipið til hafnar á miðvikudagsmorgunn.
Lesa meira
frá norð-austanverðu Horni allt að minni Önundarfjarðar. Stjórnstöð hafði í morgun samband við togara á svæðinu undan Vestfjörðum og áréttaði að skipin létu stjórnstöð strax vita ef vart yrði um hafís á svæðinu þannig að upplýsingum yrði komið til skipa sem leið eiga um svæðið.Nokkrar áhyggjur vöktu fregnir af siglingu olíuskipa um íslensku efnahagslögsöguna en annað skipanna valdi að sigla vestur fyrir land í afleitu veðri, þar sem hætta var á hafís.
Lesa meira
Skipin eru Atlas Voyager og Nevskiy Prospect, bæði um 62.000 brúttótonn, 249 metrar að lengd og með yfir 100.000 tonn af hráolíu innanborðs. Atlas Voyager sigldi vestur fyrir land og yfirgaf íslensku lögsöguna í dag en Nevskiy Prospect virðist stefna ekki fjarri ströndum við SA-land.
Lesa meira
forstjóra Landhelgisgæslunnar á fundi samtakanna sem haldinn var á Akureyri. Almenn ánægja var með fundinn þar sem málefni Norður- Íshafsins voru ofarlega á baugi auk þess sem samtökin telja afar mikilvægt að beita sér fyrir aðstoð við þróunarríki vegna öryggismála á hafinu þar sem smygl eiturlyfja helst oft á tíðum í hendur við ólöglegar fiskveiðar og árásir sjóræningja. Undirstrikað var mikilvægi virkrar upplýsingamiðlunar og miðlunar reynslu á sviðum samtakanna sem varða öryggismál á hafinu, smygl eiturlyfja, ólöglega innflytjendur, fiskveiðieftirlit, leit og björgun auk tæknisamvinnu.
Lesa meira
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, mars