Fréttir

Fyrirsagnalisti

26. des. 2009 : Sprengjusveit kölluð út vegna grunsamlegs farangurs um borð í farþegaflugvél

Sprengjusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út kl. 16:10 í dag eftir að stjórnstöð barst tilkynning um grunsamlegan farangur um borð í farþegaflugvél Lufthansa á flugleiðinni frá Frankfurt til Bandaríkjanna. Var lending flugvélarinnar áætluð á Keflavíkurflugvelli kl. 16:30. Eftir samráð við sérsveit Ríkislögreglustjóra hélt sprengjusveitin til Keflavíkur til aðstoðar. Lesa meira
 

26. des. 2009 : Gasflutningaskip siglir fyrir Vestfirði

Þrátt fyrir að engin íslensk fiskiskip séu á sjó um jólin eru tuttugu og níu erlend skip á siglingu um íslensku lögsöguna. ArcticPrincessSamkvæmt varðstjórum Landhelgisgæslunnar er þar á meðal norska gasflutningaskipið ARCTIC PRINSESS sem er rúmlega 121 þús. brúttótonna og 288 metrar að lengd. Er það með stærri skipum sem siglt hafa hér við land. Skipið stefndi kl. 11:00 í morgun fyrir Vestfirði og sigldi með 16 sjómílna hraða. Verður skipið næst landi um 30 sml NV-af Straumnesi. Lesa meira
 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica