Fréttir

Fyrirsagnalisti

31. jan. 2010 : Margir lögðu leið sína í v/s Óðinn á 50 ára afmæli varðskipsins

Í tilefni af 50 ára afmæli varðskipsins Óðins var Sjóminjasafnið við Grandagarð með frítt fyrir alla um borð í skipið og á safnið um helgina. Fyrrverandi Óðinsmenn voru um borð í skipinu og fræddu gesti um lífið um borð. Lögðu fjölmargir leið sína í Grandagarðinn og skoðuðu varðskipið sem á sér langa og merkilega sögu. Lesa meira
 

31. jan. 2010 : Leit að línubát NV-af Garðskaga

Fyrir hádegi í dag, sunnudag hvarf 12 tonna línubátur úr fjareftirlitskerfi Landhelgisgæslunnar. Var báturinn síðast staddur um 18 sjómílur NV af Garðskaga. Landhelgisgæslan boðaði út björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, Hannes Þ. Hafstein frá Sandgerði og Jón Oddgeir frá Njarðvík til leitar. Einnig var þyrla Landhelgisgæslunnar Líf kölluð út og nærstaddir bátar og skip voru beðin um að hætta veiðum og halda til leitar. Lesa meira
 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica