Samband náðist við starfsmenn Landhelgisgæslunnar í Chile - eiga bókað flug á mánudag
Nýjar fréttir voru að berast frá Chile í gegnum Danmörku. Stuttu eftir kvöldmat tókst að ná símasambandi við einn Dananna sem starfar á vegum Landhelgisgæslunnar við skipasmíðina í Chile og koma til hans upplýsingum um flugáætlanir Unnþórs Torfasonar og Ragnars Ingólfssonar. Nú rétt í þessu náðist aftur samband við þennan sama aðila og var hann þá staddur í skipasmíðastöðinni. Lesa meira
Reynt eftir öllum leiðum að komast að nýju í samband við íslenska starfsmenn Landhelgisgæslunnar
Enn er unnið að því að koma íslenskum starfsmönnum Landhelgisgæslunnar heim frá Chile. Þær upplýsingar hafa fengist að reynt verði að opna flugvöllinn í Concepcion á morgun, mánudag kl. 11:30 að staðartíma eða kl. 14:30 að íslenskum tíma. Ekki hefur tekist að koma skilaboðum til starfsmannana um farmiða né konu sem tilbúin er til að aðstoða. Áríðandi er að þessum skilaboðum verði komið til þeirra ef þeir hafa samband í gegnum síma eða tölvu.
Lesa meiraÍslenskir starfsmenn Landhelgisgæslunnar í Chile heilir á húfi
Danskir starfsmenn Landhelgisgæslunnar í Chile óhultir eftir jarðskjálftann
Ekki hefur náðst samband við starfsmenn Landhelgisgæslunnar á skjálftasvæðinu í Chile
Ægir með brimlendingaræfingar.
nauðsynlegt að æfa þær við erfiðar aðstæður. Það gerði áhöfnin á Ægi fyrir skemmstu en markmið æfinganna er að menn þekki réttu handtökin, þekki bát og búnað, áhöfn bátsins og síðast en ekki síst eigin takmörk.
Lesa meira
Tvö útköll á sunnudagsmorgun
Viðbúnaður vegna flugvéla á leið til landsins
Þýsk freigáta í Reykjavík - landsleikur við áhöfnina
Varðskipið TÝR heimsækir Hólmavík á 112 daginn
fimmtudaginn 11. febrúar. Við það tækifæri var haldin stutt kynning á Landhelgisgæslunni og starfsemi hennar í grunnskólanum á Hólmavík. Eftir kynningu héldu nemendur og starfsmenn skólans niður á bryggju þar sem bættust í hópinn nemendur og kennarar frá Drangsnesi og Finnbogastaðaskóla í Árneshreppi. Síðust en ekki síst voru svo börnin á leikskólanum Lækjarbrekku sem ráku lestina.
Lesa meira
Getur þú hjálpað þegar á reynir?
Varðskipið TÝR heimsækir Grímeyinga
þegar varðskipið TÝR lagðist þar að bryggju. Við það tækifæri komu öll grunn- og leikskólabörn eyjarinnar ásamt kennurum í heimsókn um borð. Farið var um skipið í fylgd skipverja sem fræddu gestina um skipið og búnað þess.
Lesa meira
Eftirlit Landhelgisgæslunnar með erlendum loðnuskipum á loðnumiðum djúpt austur af Dalatanga.
vegna loðnuveiða Norðmanna djúpt undan Austfjörðum. Varðskip hefur verið við eftirlit á miðunum en gefinn var út loðnukvóti fyrir norsk skip upp á 28.431 tonn. Öll norsku skipin hættu veiðum á sunnudag og tilkynntu þau alls 27.745 tonna afla. Norsku skipin byrjuðu að streyma á miðin 2. febrúar en af 79 skipum sem höfðu veiðileyfi komu 31 skip til veiða. Lesa meira
Fjöldi norskra skipa við loðnuveiðar A- og SA af landinu
við lögsögumörkin og er kominn til loðnuveiða A- og SA af landinu en fyrir helgi komu út nýjar reglugerðir um loðnuveiðar íslenskra og erlendra skipa á vetrarvertíð 2010. Eftirlitsflugvélin Sif flaug yfir svæðið í gærkvöldi framhjá straumi norskra skipa á leið inn í lögsögu Íslands.
Lesa meira

