Fréttir

Fyrirsagnalisti

28. feb. 2010 : Samband náðist við starfsmenn Landhelgisgæslunnar í Chile - eiga bókað flug á mánudag

Sunnudagur kl. 23:15
Nýjar fréttir voru að berast frá Chile í gegnum Danmörku. Stuttu eftir kvöldmat tókst að ná símasambandi við einn Dananna sem starfar á vegum Landhelgisgæslunnar við skipasmíðina í Chile og koma til hans upplýsingum um flugáætlanir Unnþórs Torfasonar og Ragnars Ingólfssonar. Nú rétt í þessu náðist aftur samband við þennan sama aðila og var hann þá staddur í skipasmíðastöðinni. Lesa meira
 

28. feb. 2010 : Reynt eftir öllum leiðum að komast að nýju í samband við íslenska starfsmenn Landhelgisgæslunnar

Enn er unnið að því að koma íslenskum starfsmönnum Landhelgisgæslunnar heim frá Chile. Þær upplýsingar hafa fengist að reynt verði að opna flugvöllinn í Concepcion á morgun, mánudag kl. 11:30 að staðartíma eða kl. 14:30 að íslenskum tíma.  Ekki hefur tekist að koma skilaboðum til starfsmannana um farmiða né konu sem tilbúin er til að aðstoða. Áríðandi er að þessum skilaboðum verði komið til þeirra ef þeir hafa samband í gegnum síma eða tölvu. 

Lesa meira
 

28. feb. 2010 : Íslenskir starfsmenn Landhelgisgæslunnar í Chile heilir á húfi

Þær gleðifregnir bárust að ganga eitt aðfaranótt laugardagsins 28. febrúar að tveir íslenskir starfsmenn Landhelgisgæslunnar í Chile eru heilir á húfi og við góða heilsu. Þeim tókst að komast í örstutt símasamband og láta vita af sér. Lesa meira
 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica