Baldur, sjómælinga- og eftirlitsskip Landhelgisgæslunnar ásamt Fjölva, pramma Köfunarþjónustunnar komu til Reykjavíkur síðdegis með fiskibátinn Anítu Lif sem sökk norður af Akurey á laugardag. Með í för voru fulltrúar Rannsóknarnefndar sjóslysa og tryggingafélags. Björgunaraðgerðir stóðu yfir frá því snemma i morgun.
Lesa meiraNú stendur yfir á Grand hótel fundur European Patrol Network sem haldinn er í samvinnu við Landhelgisgæslu Íslands. Fundinn sitja fulltrúar Evrópuþjóða og alþjóðlegra samtaka sem koma að landamæraeftirliti á sjó og landi. Landhelgisgæslu Íslands var falið að skipuleggja fundinn ásamt Frontex, landamærastofnun Evrópusambandsins .
Lesa meiraLoftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst á ný með komu flugsveitar Kanadíska flughersins sunnudaginn 3. apríl. Verkefnið er í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland.
Landhelgisgæslunni barst kl. 12:09 aðstoðarbeiðni frá skemmtibát, með tvo menn í áhöfn, sem var vélarvana norðan við hafnargarðinn í Vogum, þar sem miklar grynningar eru. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út auk þess sem björgunarskip og bátar Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á svæðinu, sem og nærstaddir bátar voru beðnir um að fara til aðstoðar.
Ekki mátti miklu muna síðdegis í dag þegar bátur sökk skyndilega norðan við Akurey, á Sundunum við Reykjavík. Áhöfn bátsins náði til talstöðvar og sendi neyðarkall á rás 16 kl. 17:06 eða rétt áður en báturinn sökk. Varðstjórar Landhelgisgæslunnar í vaktstöð siglinga heyrðu kallið og ræstu samstundis út allar tiltækar björgunareiningar,
Lesa meiraLandhelgisgæslunni barst í gær tilkynning frá togara um hvalhræ sem kom í veiðarfærin um 6 sml. suður af Selvogsvita. Kom hræið í trollið sem rifnaði og varð að sleppa því í sjóinn. Siglingaviðvaranir voru í kjölfarið sendar út en hræið getur verið hættulegt minni bátum.
Lesa meiraLandhelgisgæslan mun á næstu vikum fylgjast reglulega með siglingu kajakræðarans Riann Manser sem ásamt Dan Skinstad ætlar sér að róa tveggja manna kajak í kringum Ísland en ferðin hefst á sunnudag frá Húsavík.
Lesa meira
Í dag fór þyrla Landhelgisgæslunar í ísleiðangur og var flogið norður með Vestfjörðum. Komið var að ísröndinni út af Látrabjargi og henni fylgt til norðausturs.
Var ísröndin næst landi: 56 sml frá Látrabjargi, 38 sml frá Barða, 38 sml frá Kögri og 50 sml frá Hornbjargi.
Varðskipið Týr lagðist í vikunni að bryggju á Tálkafirði og var nemendum og kennurum grunnskólans á Tálknafirði boðið í heimsókn um borð. Vakti heimsóknin almenna lukku og fróðleik. Á morgun fimmtudag eru 36 ár síðan varðskipið Týr kom fyrst til landsins.
Lesa meiraNýverið var haldinn árlegur fundur Landhelgisgæslunnar með viðbragðsaðilum sem hlutverk hafa við leit og björgun sjófarenda og loftfara. Á fundinum var fjallað um helstu björgunaraðgerðir ársins 2010 og hvaða lærdóm megi af þeim draga með það að markmiði að auka öryggi sjófarenda og loftfara. Einnig var kynnt ný reglugerð um stjórnun leitar og björgunar sjófarenda og loftfara.
Lesa meiraNýlega sóttu um 20 starfsmenn frá Landhelgisgæslunni tveggja daga námskeið hjá Isavia. Námskeiðið var haldið á grundvelli samstarfssamnings Isavia og Landhelgisgæslunnar um leitar- og björgunarþjónustu en Landhelgisgæslan starfrækir björgunarmiðstöðina JRCC Ísland fyrir sjófarendur og loftför.
Varðskipið Þór, sem hefur legið við bryggju í bænum Talcuahano í Chile, er óskemmt eftir að þrjár flóðbylgjur gengu yfir svæðið aðfaranótt laugardags. Hæsta flóðbylgjan mældist 2,4 metrar á hæð.
Lesa meira
Fyrir skömmu síðan bárust fréttir frá starfsmönnum Landhelgisgæslunnar í Chile um að í dag, milli kl. 17:00-20:00 að íslenskum tíma, mun varðskipið Þór verða dregið út í flóann sem liggur að bænum Conception þar sem þar sem ASMAR skipasmíðastöð sjóhersins í Chile er staðsett. Búist er við að flóðbylgja gangi yfir svæðið um kl. 20:00 í kvöld
Lesa meiraTýr varðskip Landhelgisgæslunnar kom til Reykjavíkur kl. 18:00 í kvöld með stálpramma í togi sem Landhelgisgæslan hefur svipast eftir um nokkurt skeið.
Lesa meiraLandhelgisgæslunni barst kl. 19:01 aðstoðarbeiðni frá fiskibát sem var vélarvana um ½ sjómílu austur af Elliðaey á Breiðafirði. Björgunarsveit Slysavarnarfélagsins Landsbjargar í Stykkishólmi var kölluð út auk þess sem fiskibáturinn Þórsnes II fór frá Stykkishólmi. Einnig var TF-LÍF þyrla Landhelgisgæslunnar beðin um að stefna á staðinn.
Lesa meiraLandhelgisgæslunni barst kl. 09:00 í morgun aðstoðarbeiðni frá lögreglunni á Ísafirði vegna torkennilegs hlutar sem barst í veiðarfæri togarans Júlíusar Geirmundssonar sem kominn var að bryggju á Ísafirði. Sprengjusveit Landhelgisgæslunnar fór á Ísafjörð og eyddi hlutnum sem reyndist vera oddur flugskeytis.
Lesa meira
Landhelgisgæslunni barst kl. 11:39 í morgun beiðni um aðstoð Landhelgisgæslunnar vegna skipverja sem féll útbyrðis af dragnótabát sem var við veiðar í Meðallandsbugt út af Skaftafellsfjöru eða um 2,5 sml frá landi.
Lesa meira
Georg Kr. Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar og Ásgeir Pálsson framkvæmdastjóri flugleiðsögusviðs ISAVIA hafa undirritað samkomulag við björgunarstjórnstöðina í Færeyjum, MRCC Tórshavn, varðandi fyrirkomulag samstarfs og upplýsingaskipti.
Lesa meira
Varðskip Landhelgisgæslunnar leitar nú að stálpramma um 15 sjómílur SV-af Malarrifi sem skipum og bátum stafar hætta af. Tilkynning um prammann barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar frá fiskiskipi sem statt var á svæðinu.
Lesa meira
Starfsmönnum Landhelgisgæslunnar barst í dag bréf frá Georg Kr. Lárussyni forstjóra varðandi fyrirspurn sem barst í gær frá Frontex - Landamærastofnun EU. Bréfið er svohljóðandi.
Fjórtán atvinnukafarar útskrifuðust síðastliðinn föstudag af sameiginlegu námskeiði Landhelgisgæslunnar, Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og Ríkislögreglustjóra. Mikil ánægja var með hópinn sem sýndi miklar framfarir á krefjandi vikum námskeiðisins.
Lesa meira