Síðdegis bárust þær fréttir frá starfsmönnum Landhelgisgæslunnar í Chile að Þór, nýtt fjölnota varðskip Landhelgisgæslunnar flaut fyrr í dag nýmálaður og stórglæsilegur úr kví ASMAR skipasmíðastöðvarinnar sem er í eigu sjóhersins í Chile. Stórum áfanga er nú náð í smíði skipsins.
Í gæslu og æfingaflugi flugvélar Landhelgisgæslunnar í gær var m.a. flogið um SA mið. Í eftirlitsbúnaði sáust m.a. miklar fiskivöður sem voru þá um 10 sjómílur ASA af Ingólfshöfða.
Lesa meira
Flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SIF fór í eftirlitsflug í gær þar sem m.a. var aflað upplýsinga um gosstöðvarnar í Grímsvötnum. Á radarmyndum sást gosbólstur sem steig beint upp í loftið og náði um 1,5 km. hæð. Var strókurinn frekar ljósleitur og sást ekki aska í honum. Samkvæmt þessu er greinilegt að gosinu er ekki lokið.
Lesa meira
Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF flaug í gær með vísindamenn frá Jarðvísindastofnun og Veðurstofunni að gosstöðvunum í Grímsvötnum. Staðfestu vísindamenn að loknu flugi það sem áður hafði komið fram; minnkandi virkni en óreglulega gosstróka sem geta verið varasamir.
Lesa meiraNýverið útskrifuðust tveir stýrimenn Landhelgisgæslunnar, Henning Þór Aðalmundsson og Hreggviður Símonarson sem neyðarflutningamenn frá Sjúkraflutningaskólanum. Hafa þeir þar með lokið grunnnámi í sjúkraflutningum EMT-Basic og framhaldsnámi sem er námskeið í neyðarflutningum EMT-Intermediet.
Lesa meiraLandhelgisgæslunni barst kl. 22:13 í gærkvöldi aðstoðarbeiðni frá sex metra seglskútu með brotið stýri undan Hvassahrauni, rétt utan við Straumsvík. Einn maður var um borð og sagði hann enga hættu á ferðum en óskaði eftir aðstoð við að komast í land.
Lesa meiraVarnaræfingin Norður Víkingur 2011 verður haldin dagana 3. – 10. júní 2011. Æfingin er haldin í samræmi við samkomulag um framkvæmd varnarsamnings Íslands og Bandaríkjanna frá árinu 2006. Samhliða Norður Víkingi 2011 verður hér á landi regluleg loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins í samræmi við ákvörðun þess og íslenskra stjórnvalda frá árinu 2007.
Lesa meira
Varðskipið Ægir flutti fyrir skömmu tvær þyrlur fyrir Vesturflug (Blue West Helicopters) frá Ísafjarðardjúpi að ísröndinni við Grænland. Flugu þyrlurnar frá varðskipinu inn á land en lentu þar í mjög slæmu veðri og neyddust til að lenda. Liðu 28 klst þar til þeim tókst að fara að nýju í loftið.
Beiðni um útkall þyrlu Landhelgisgæslunnar barst kl. 16:47 þegar TF-LÍF var í gæslu- og eftirlitsflugi á Breiðafirði. Óskað var eftir aðstoð þyrlunnar vegna bílslys sem varð suður af Gilsfirði. Annað útkall barst kl. 20:28 vegna konu sem slasaðist í Esju.
Þyrla Landhelgisgæslunnar fór í dag í eftirlitsflug um friðlandið á Hornströndum þar sem sérstaklega var leitast við að finna merki um hvítabirni á svæðinu. Mikill almennur þrýstingur hefur verið um að farið yrði í slíkt flug, eftir að hvítabjörn var felldur í Rekavík 2. maí síðastliðinn.
Lesa meira
Afar árangursrík æfing var í gær haldin með þátttöku flugvélar og þyrlu Landhelgisgæslunnar auk tveggja félaga úr Flugbjörgunarsveitinni sem brunuðu upp á Langjökul og léku sig týnda. Tilgangur æfingarinnar var að finna vélsleðamennina tvo með leitar og eftirlitsbúnaði um borð í loftförunum tveimur.
Lesa meiraTF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar sneri nýverið aftur til landsins eftir að breytingar voru gerðar á flugstjórnarklefa vélarinnar hjá Field Aviation í Kanada. Skipt var út 45 mælum sem áður voru í stjórnborði flugvélarinnar og í stað þeirra birtast upplýsingar nú á fimm rafrænum skjáum.
Lesa meira
Þegar TF-SIF var í eftirlitsflugi í gær voru rúmlega sexhundruð skip og bátar í eftirliti. Enn var þá veitt á öllum strandveiðisvæðum. Frá og með deginum í dag voru veiðar hinsvegar bannaðar á svæði A sem er svæðið frá Eyja- og Miklaholtshreppi til Súðavíkurhrepps. Sjá þéttar merkingar á kortinu.
Lesa meiraÞyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út kl. 18:52 í kvöld eftir að fjarskiptamiðstöð lögreglunnar óskaði eftir aðstoð við leit að týndum manni í Esju. Fór þyrlan í loftið kl. 19:21 og var byrjað að leita austast á gönguleiðinni og leitað var vestur með henni.
Kl. 1953 sást maðurinn frá þyrlunni við vörðu efst á Hábungu.
Landhelgisgæslunni barst kl. 18:09 beiðni frá Neyðarlínunni um að þyrla Landhelgisgæslunnar myndi sækja mann sem slasaðist á vélsleða á Skjaldbreid. Fór TF-GNA, þyrla Landhelgisgæslunnar í loftið frá Reykjavík kl. 18:52 og reiknað er með að þyrlan verði á slysstað um kl. 19:20.
Lesa meiraLandhelgisgæslunni barst kl. 15:35 aðstoðarbeiðni frá skipi sem statt er um 40 sml SV af Reykjanesi. Óskað var eftir sambandi við þyrlulækni vegna sjúklings um borð. Að höfðu samráði við lækni var TF-LIF þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út og verður hún við skipið um kl. 16:40. Reiknað er með að þyrlan verði við Landspítalann í Fossvogi um kl. 17:30.
Lesa meira
Landhelgisgæslunni barst kl. 12:42 tilkynning um eld um borð í fiskibátnum Ása RE-52 sem staddur var 10 sml. NV af Gróttu með einn mann um borð. Samstundis voru nærstaddir bátar kallaðir til aðstoðar ásamt björgunarsveitum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu og á Akranesi. Einnig var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út.
Lesa meira
Nýlega kom út hjá FAO - Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna, skýrsla Gylfa Geirssonar, sérfræðings hjá Landhelgisgæslunni ; Case Study of the Icelandic Integrated System for Monitoring, Control and Surveillance . Skýrslan útskýrir undirbúning, þróun og rekstur samræmdra eftirlitskerfa Landhelgisgæslunnar.
Lesa meiraHvítabjörn var felldur í Rekavík (Bakhöfn) á Hornströndum kl. 14.21. Tilkynning barst Landhelgisgæslunni í morgun um hvítabjörn í Hælavík á Hornströndum. Þyrla Landhelgisgæslunnar flaug á Ísafjörð þaðan sem flogið var á Hornstrandir í Hælavík. Þegar þangað var komið hafði dýrið fært sig um set og fannst eftir nokkra leit í Rekavík (Bakhöfn)
Lesa meira
Varðskipið Týr hélt í morgun úr höfn í Reykjavík en skipið mun til loka nóvembermánaðar sinna verkefnum fyrir CFCA - Fiskveiðieftirlitsstofnun Evrópusambandsins. Landhelgisgæslan útvegar tæki og áhöfn til verkefnisins en CFCA sér alfarið um fiskveiðieftirlit.
Lesa meira
Landhelgisgæslan hefur nú kannað veiðar skipa frá Spáni og Rússlandi sem sáust í gæsluflugi á Reykjaneshrygg fyrir tveimur dögum. Við skoðun varðskipsmanna um borð í skipum frá Spáni í dag kom í ljós að þau eru að veiða langhala og var enginn úthafskarfi í afla eða um borð í skipunum
Lesa meira