Landhelgisgæslan og sjóbjörgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar taka á mánudag og þriðjudag þátt í æfingum með danska varðskipinu Knud Rasmussen sem statt er hér á landi. Um þessar mundir er kona í fyrsta skipti að taka við stjórn Knud Rasmussen og er hún fyrsta konan til að stjórna varðskipi af þessari stærðargráðu innan danska sjóhersins.
Lesa meira
Landhelgisgæslunni barst kl. 11:25 í gær beiðni frá Lögreglunni á Hvolsvelli um þyrlu vegna leitar að erlendum ferðamanni á Fimmvörðuhálsi, sem villtist í þoku og óskaði aðstoðar aðfaranótt miðvikudags vegna meiðsla á fæti. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út kl. 12: 05.
Lesa meiraÞyrla Landhelgisgæslunnar er nú við leit á Fimmvörðuhálsi ásamt björgunarsveitarmönnum. Leitað er að Norðmanni sem villtist í þoku og óskaði aðstoðar vegna meiðsla á fæti.
Lesa meiraLandhelgisgæslunni barst kl. 18:50 beiðni frá Neyðarlínunni um útkall þyrlu vegna alvarlegs bifhjólaslyss sem varð nyrst á Skagatá. Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-LIF var nýfarinn í loftið til æfingar, var hún kölluð inn aftur á Reykjavíkurflugvöll og þyrlulæknir kallaður út til viðbótar við áhöfnina.
Lesa meiraSprengjudeild Landhelgisgæslunnar barst í morgun tilkynning frá lögreglunni um að sprengjuvörpusprengja hefði fundist í Bláfjöllum. Um var að ræða 60 millimetra „mortar“ sprengju frá stríðsárunum og var hún flutt til eyðingar.
Lesa meira
Mikið annríki er nú í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar. Allt stefnir í metfjölda skipa og báta á sjó, bátur er vélarvana á Breiðafirði og þyrla hefur verið kölluð út vegna alvarlegra veikinda á Kirkjubæjarklaustri.
Lesa meira
Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra óskaði kl. 05:44 í morgun eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar til að fljúga með vísindamenn og lögreglumenn til að skoða aðstæður við Mýrdalsjökul.
Lesa meiraLandhelgisgæslunni barst kl. 17:01 barst beiðni frá Neyðarlínunni um þyrlu vegna erlends ferðamanns sem slasaðist í Skálpanesi S-við Langjökul. Þyrla LandhelgisgæslunnarTF-LÍF var kölluð út og fór hún í loftið kl. 17:41.
Lesa meira
Um 900-1000 skip hafa verið á sjó dag hvern í þessari viku og fylgir því mikið annríki fyrir varðstjóra Landhelgisgæslunnar. Brýnt er fyrir sjófarendum að koma ekki nærri öldumælisduflum sem lögð hafa verið út undan ströndum landsins.
Í júní mánuði fóru þyrlur Landhelgisgæslunnar reglulega í eftirlits- og gæsluflug þar sem fylgst var með skipaumferð og fiskveiðum á hafsvæðinu umhverfis Ísland. Í öllum tilfellum bar skipum á sjó saman við fjareftirlitsgögn frá stjórnstöð Landhelgisgæslunnar
Lesa meiraÞyrlur Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út um kl. 12:30 í dag eftir að alvarlegt þriggja bifreiða bílslys varð við bæinn Miðhóp í Vestur Húnavatnssýslu. Í bifreiðunum voru samtals níu manns og þar af tveir alvarlega slasaðir.
Lögreglan á Selfossi og Þyrludeild Landhelgisgæslunnar sinntu um helgina umferðareftirliti úr þyrlu. Farið var um Suður-, Vestur- og Norðurland og umferðinni fylgt eftir.
Lesa meira
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti í kvöld mann sem féll af hestbaki í Bjarnarfirði nyðri, milli Skjaldbjarnarvíkur og Drangavíkur en maðurinn var þar í hópi ferðafólks.
Lesa meiraStjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst kl. 18:45 beiðni frá lögreglunni á Hólmavík um þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna alvarlegs vélhjólaslyss sem varð innst í Ísafjarðardjúpi.
Lesa meiraLandhelgisgæslunni barst kl. 11:09 beiðni um aðstoð við farþegabát með átta manns um borð, þar af sex farþega, sem hafði strandað við Lundey. Ekki var talin hætta á ferðum en báturinn hallaði nokkuð á skerinu.
Lesa meira
Mikil umferð var á sjó í gær. Þegar mest var höfðu varðstjórar Landhelgisgæslunnar eftirlit með 964 skipum og bátum á miðunum kringum landið. Einn bátur var staðinn að ólöglegum veiðum.
Lesa meira
Claudio Bisgogniero, varaframkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins heimsótti í gær starfsstöðvar Landhelgisgæslunnar á Keflavíkurflugvelli.
Lesa meira