Starfsmenn Landhelgisgæslu Íslands óska samstarfsaðilum og landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs og þakka ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða. Hér má sjá margvíslegar myndir úr fjölbreyttu starfi Landhelgisgæslunnar á árinu 2011.
Lesa meira
Landhelgisgæslunni barst kl. 11:40 beiðni frá Neyðarlínu um að þyrla yrði sett í biðstöðu á flugvelli vegna bílslys sem varð rétt við Jökulsárlón á Breiðamerkursandi. Var þyrluáhöfn kölluð út og kl. 11:48 var óskað eftir að þyrlan færi á vettvang.
Landhelgisgæsla Íslands sendir landsmönnum öllum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár.Aðeins tveir íslenskir togarar voru á sjó innan íslenska hafsvæðisins í morgun kl. 07:00 og voru þeir á leið til hafnar. Einnig voru sex erlend flutninga- og fiskiskip innan íslenska leitar- og björgunarsvæðisins.
Lesa meiraEitt af verkefnum sprengjusveitar Landhelgisgæslunnar er að eyða efnum sem hætta getur stafað af. Landhelgisgæslunni barst nýverið aðstoðarbeiðni frá Sorpu vegna eyðingar á efni sem barst þeim í efnakari rannsóknarstofu.
Lesa meira
Landhelgisgæslunni barst kl. 10:34 beiðni, í gegnum Neyðarlínuna, um aðstoð þyrlu frá lækni í Búðardal vegna slyss sem varð um borð í bát við bryggju í Reykhólahöfn.Fór TF-GNA í loftið kl. 11:06 og flaug hún beint á staðinn og lenti kl. 11:40 á flugvellinum á Reykhólum.
Lesa meira
TF-SIF flugvél Landhelgisgæslunnar lenti á Reykjavíkurflugvelli síðdegis í dag eftir tveggja mánaða fjarveru við verkefni á vegum landamærastofnunar Evrópusambandsins. Var flugvélin við eftirlit á Miðjarðarhafi og Eyjahafi en gert var út frá ítölsku borginni Brindisi.
Lesa meira
Verkefnum TF-SIF, flugvélar Landhelgisgæslunnar árið 2011 er nú lokið fyrir Frontex, landamærastofnun Evrópusambandsins. Flugvélin er nú á heimleið frá Ítalíu og er gert ráð fyrir að hún lendi á Reykjavíkurflugvelli á morgun miðvikudag.
Opnun tilboða vegna tímabundinnar leigu á þyrlu til Landhelgisgæslunnar fór fram í dag hjá Ríkiskaupum. Niðurstöður urðu þær að tvö tilboð bárust. Annars vegar þyrla af gerðinni Aerospatiale Super Puma AS332 L1, sem er sömu tegundar og þyrlur LHG og í eigu Knut Axel Ugland Holding. Hins vegar barst frávikstilboð um leigu á Dauphin AS365N.
Lesa meira
Samkvæmt reglugerð um vaktstöð siglinga og eftirlit með umferð skipa nr. 672/2006 átti eftir orðanna hljóðan að skipta út Racal tækjum fyrir AIS tæki í skipum og bátum með haffæri á hafsvæði A1 strax um áramótin 2010 / 2011. Nú um áramótin eiga allir bátar og skip að hafa farið í gegnum búnaðarskoðun og tækjaskipti eiga að hafa farið fram. Eftir áramótin verður engin vöktun á sendingum Racal tækja.
Lesa meira
Varðskipið Ægir hefur að undanförnu verið við eftirlit í Faxaflóa og á Breiðafirði. Í ferðinni var farið til eftirlits í fimmtán skip og báta. Ekki komu upp kærumál í þessum skoðunum sem er breyting til batnaðar.
Að gefnu tilefni vill Landhelgisgæslan birta að nýju samantekt varðandi ferðir starfsmanna Landhelgisgæslunnar erlendis á árinu 2011. Er samantektin birt að nýju vegna misvísandi fréttaflutnings fjölmiðla að undanförnu. Voru upplýsingar settar inn á heimasíðu Landhelgisgæslunnar 22. nóvember sl.
Jólastund starfsmanna Landhelgisgæslunnar var í gær haldin í flugskýli Landhelgisgæslunnar við Nauthólsvík. Er jólastundin árviss viðburður og ómissandi þáttur í undirbúningi jólanna.
Lesa meira
Landhelgisgæslunni barst kl. 15:25 á sunnudag beiðni frá lögreglunni á Höfn og Egilsstöðum um aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar við leit að fjórum vélsleðamönnum norður af Vatnajökli sem fóru til leitar að kindum sem ekki höfðu skilað sér í haust. Höfðu þeir áætlað að hefja eftirleitina frá Egilsselsskála í Jökuldal .
Lesa meira
Við mælingar á vélbúnaði, vegna ábyrgðar varðskipsins Þórs, kom í ljós titringur á annarri aðalvél skipsins. Fór Landhelgisgæslan fram á við framleiðendur vélanna, sem er Rolls Royce í Noregi, að sendir yrðu fulltrúar þeirra til þess að kanna hver orsökin gæti verið, enda leggur Landhelgisgæslan á það mikla áherslu að nýta ábyrgðartíma vélanna sem eru 18 mánuðir.
Lesa meiraOlíuskipið Sti. Heritage, sem skráð er á Marshall eyjum og er tæplega 40.000 tonna tankskip lónaði frá föstudegi til þriðjudags um 40 sjómílur A-af Stokksnesi. Olíuskipið var á siglingu með fullfermi frá Murmansk í Rússlandi til Shetlandseyja en vegna veðurs fékk skipið fyrirmæli frá útgerðarfélagi sínu að bíða á þessu svæði eftir hagstæðari veðurskilyrðum.
Lesa meira