Siglingar skemmtiferðaskipa um Norðurslóðir hafa aukist jafnt og þétt á sl. árum og hefur verið lagt til að skemmtiferðaskip sigli tvö og tvö saman til að auðveldara sé að bregðast við stórslysi hliðstæðu því sem varð nýlega þegar skemmtiferðaskipið Costa Concordia strandaði við Ítalíu. Til að gera sér grein fyrir stærð skipsins má hér sjá myndir af varðskipinu Tý við hlið Costa Concordia í höfn Valetta á Möltu sumarið 2011.
Lesa meira
Landhelgisgæslunni barst kl. 13:14 neyðarkall frá íslensku togskipi með fjóra menn um borð sem var staðsett innan norskrar lögsögu eða 150 sml NV af Álasundi í Noregi. Á sama tíma hvarf skipið úr ferilvöktunarkerfum. Var samstundis haft samband við norsku björgunarmiðstöðina í Bodö.
Lesa meiraTF-LÍF þyrla Landhelgisgæslunnar hefur frá 13. janúar sl. verið staðsett í Noregi þar sem verið er að framkvæma á henni stóra skoðun, svokallaða G-skoðun. Starfsmenn úr Flugtæknideild Landhelgisgæslunnar taka þátt í verkinu og segja þeir framkvæmdina hafa gengið vel.
Lesa meiraÍ dag var undirritaður leigusamningur til 12 mánaða um leigu á þyrlu fyrir Landhelgisgæsluna en eins og komið hefur fram voru tilboð vegna leigu á björgunarþyrlu fyrir Landhelgisgæsluna opnuð hjá Ríkiskaup þann 19. desember sl. Mun þyrlan fá einkennisstafina TF SÝN.
Lesa meira
Starfsmenn tollstjórans kynntu nýverið fyrir starfsmönnum Landhelgisgæslunnar gegnumlýsingarbifreið sem tekin var til notkunar í byrjun árs 2009. Bifreiðin er notuð til að gegnumlýsa stærri hluti, allt upp í flutningagáma, á hafnarsvæðum og flugvöllum landsins.
Lesa meira
Sjómælingasvið, í samstarfi við Orkustofnun, tók í vikunni þátt í 30. vetrarmóti norrænna jarðfræðinga sem haldið var í Hörpu. Birt voru tvö plaköt sem sýna dýptarmælingar og hafsbotnsmyndir af Hvalfirði annars vegar og Kollafirði hins vegar
Lesa meira
Dómarar og starfsfólk Hæstaréttar Íslands heimsótti nýverið varðskipið Þór og fengu þau kynningu á möguleikum varðskipsins í björgunar-, eftirlits-, og löggæsluaðgerðum.
Lesa meira
Samkvæmt varðstjórum Landhelgisgæslunnar höfðu í gærmorgun þrír norskir loðnubátar meldað sig til veiða innan íslensku efnahagslögsögunnar. Hafa þau ekki tilkynnt um afla en samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu er norskum skipum heimilt að veiða 49.002 tonn af loðnu á tímabilinu frá 10. janúar til 15. febrúar 2012.
Lesa meira
Í desember fóru fram mælingar á vélbúnaði, vegna ábyrgðar varðskipsins Þórs, kom þá í ljós titringur á annarri aðalvél skipsins. Fór Landhelgisgæslan fram á við framleiðendur vélanna, sem er Rolls Royce í Noregi, að sendir yrðu fulltrúar þeirra til þess að kanna hver orsökin gæti verið, enda leggur Landhelgisgæslan á það mikla áherslu að nýta ábyrgðartíma vélanna sem eru 18 mánuðir.
Lesa meira
Þegar þyrla Landhelgisgæslunnar var að koma úr eftirlits- og gæsluflugi síðdegis í dag barst beiðni frá lögreglu um að þyrlan tæki þátt í leit að manni við Helgafell. Fór þyrlan á svæðið og fann viðkomandi kl. 16:15 eftir skamma leit.
Lesa meira
Landhelgisgæslunni barst kl. 05:08 í morgun aðstoðarbeiðni á rás 16 frá bát með tvo menn um borð, sem staddur var út af Rittá, nærri Grænuhlíð. Komið hafði upp leki í vélarrúmi og unnu mennirnir að því að dæla handvirkt úr bátnum.
Lesa meira
TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar fór í dag eftirlitsflug um Austfjarðamið, Norður og Vestur með Norðurlandi, fyrir Vestfirði og suður að Reykjanesi. M.a. var mæld staðsetning hafíss á Vestfjarðamiðum.
Lesa meira
Landhelgisgæsla Íslands – Sjómælingasvið hefur gefið út tvö ný sjókort, nr. 10 og 15, ásamt nýrri útgáfu af Kort 1 – Tákn og skammstöfunum í íslenskum sjókortum.
Lesa meiraÁkveðið hefur verið að taka tilboði Knut Axel Ugland Holding AS um leigu á þyrlu af gerðinni Aerospatiale Super Puma AS332 L1, sem er sömu tegundar og björgunarþyrlur Landhelgisgæslunnar TF-LIF og TF-GNA.
Lesa meiraVið æfingu TF-GNA, þyrlu Landhelgisgæslunnar og varðskipsins Ægis um helgina slitnaði spilvír þyrlunnar rétt áður en hífa átti mann úr sjó. Samkvæmt verklagsreglum Landhelgisgæslunnar var æfingunni hætt og samstundis kallað til fundar. Engan sakaði við atvikið sem talið er að sé hið eina sinnar tegundar í sögu flugdeildar Landhelgisgæslunnar.
Lesa meira
Sprengjusveit Landhelgisgæslunnar eyddi fyrir hádegi í dag dufli sem fannst við Selfljótsós á sunnanverðum Héraðssandi. Um var að ræða tundurdufl frá seinni heimstyrjöldinni.
Lesa meiraNýverið var frumsýnd á netinu heimildarmyndin Útkall Alpha sem fjallar um þyrlusveit Landhelgisgæslu Íslands, þyrlukost LHG og viðbragðstíma áhafna í ALPHA útköllum. Heimildarmyndin kom út á netinu þann 22. desember.
Lesa meiraEnginn íslenskur sjómaður fórst í sjóslysi við Ísland á árinu 2011 sem eru gleðileg tíðindi fyrir Landhelgisgæsluna og alla þá sem koma að sjóbjörgunarmálum á Íslandi. Þeirra á meðal eru varðstjórar Landhelgisgæslunnar innan stjórnstöðvar/vaktstöðvar siglinga, sem eru á vakt allan sólarhringinn árið um kring.
Lesa meira
Einar Örn Jónsson, slökkviliðsmaður hjá Slökkviliði höfuðborgasvæðisins hélt í morgun fróðlegan fyrirlestur um borð í varðskipinu Þór þar sem hann fjallaði um eldsvoðann sem varð í Goðafossi þann 30. október 2010. Börðust skipverjar við mikinn eld í skorsteinshúsi skipsins, í aftakaveðri milli Íslands og Færeyja.
Lesa meira
Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar var nýverið með kynningu fyrir skipstjórnarmenn og aðra starfsmenn Samherja á Akureyri þar sem m.a. var spjallað um öryggismál og móttöku á þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Lesa meira
Við flugtak TF-GNA, þyrlu Landhelgisgæslunnar í morgun kom sprunga í framrúðu þyrlunnar. Ákveðið var að snúa þyrlunni til flugvallar og skoða skemmdirnar. Leyfilegt er að nota þyrluna í neyðar- og björgunarflug en von er á nýrri rúðu til landsins á morgun, miðvikudag.