Landhelgisgæslan stóð í dag færeyskan línubát að meintum ólöglegum veiðum inni í reglugerðarhólfi suðaustur af landinu. Skipinu hefur verið vísað til hafnar þar sem lögregla mun taka skýrslu af skipstjóra.
Lesa meira
Loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins sem framkvæmd var af flugsveit þýska flughersins við Ísland er nú formlega lokið en hún hófst þann 10. mars síðastliðinn. Fjórar 4 F orrustuþotur sem notaðar voru til gæslunnar flugu af landi brott í gær og í dag yfirgáfu landið um hundrað liðsmenn þýska flughersins sem unnu að verkefninu.
Lesa meira
Varðskipið Ægir hefur að undanförnu verið við eftirlit- og löggæslu á vestur- og norðurmiðum þar sem varðskipsmenn hafa farið til eftirlits um borð í 21 skip og báta á svæðinu. Í kjölfar skyndiskoðana hafa verið gefnar út 2 kærur vegna meintra ólöglegra veiða og 8 áminningar til skipstjóra, einnig hafa verið gefnar út 3 skyndilokanir í samráði við Hafrannsóknarstofnun.
Lesa meira
Rannsóknarflugvél NASA Earth Resources (ER-2) verður næstu vikur hýst í flugskýli Landhelgisgæslunnar á Keflavíkurflugvelli. Flugvélin mun sinna rannsóknum í mikilli lofthæð yfir Grænlandi.
Lesa meiraSprengjusveit Landhelgisgæslunnar barst nýverið aðstoðarbeiðni frá lögreglunni vegna skothylkis sem þeim höfðu fengið í vörslu sína úr dánarbúi. Kom í ljós að um var að ræða 57 mm fallbyssuskot sem sprengjusveitin sótti og fór með til eyðingar.
Lesa meira
Í dag kom út hjá Íslandspósti nýtt frímerki með mynd af þyrlunni TF-LIF við björgun sextán manna áhafnar fjölveiðiskipsins Baldvins Þorsteinssonar EA 10 þann 9. mars 2004. Þema Norðurlandafrímerkjanna 2012 er leitar-og björgunarþjónusta og er frímerkið gefið út af því tilefni.
Lesa meira
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út kl. 08:32 í morgun eftir að alvarlegt slys varð um borð í togara sem staðsettur var í Ísafjarðardjúpi. TF-GNA fór í loftið kl. 08:54 og flaug beint að skipinu og sigu sigmaður og læknir um borð.
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst kl. 15:38 beiðni frá Neyðarlínunni um aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir að vélsleðaslys varð í Flateyjardal milli Eyjafjarðar og Skjálfandaflóa. Þyrluáhöfn var samstundis kölluð út og fór TF-GNA í loftið kl. 16:12.
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti á laugardag tvo erlenda ferðamenn á Vatnajökul eftir að þeir settu í gang neyðarsendi sem þeir höfðu fengið lánaðan hjá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu. Boðin frá sendinum bárust til Stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar kl. 21:51 og voru mennirnir komnir um borð í þyrluna kl. 01:41.
TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar fór í eftirlitsflug í dag þar sem flogið var frá Reykjavík að Langanesi, Grímsey, N af Horni-, um Vestfirði og Faxaflóa. Í fluginu greindi eftirlitsbúnaður flugvélarinnar olíuslikju vestur af Snæfellsnesi og utan við Faxaflóa. Málið var tilkynnt til Umhverfisstofnunar og Siglingastofnunar og stendur rannsókn á uppruna olíunnar yfir.
Lesa meira
Íslenska fyrirtækið OK Hull afhenti nýverið séraðgerða- og sprengjueyðingasviði Landhelgisgæslunnar átta metra harðbotna slöngubát sem er frumgerð (prótótýpa) og verður prófaður við ýmsar aðstæður á næstu mánuðum. OK Hull hefur unnið að þróun á nýju skrokklagi sem sótt hefur verið um einkaleyfi á. Hönnunin byggir á skrokklagi sem bæði sparar eldsneyti, heggur ölduna mun minna og hefur almennt mýkri hreyfingar en bátar sem áður hafa verið í notkun hjá Landhelgisgæslunni.
Lesa meira
Þyrla Landhelgisgæslunnar var í tvígang kölluð út í dag. Voru útköllin vegna neyðarsendis sem hóf sendingar í morgun og í eftirmiðdaginn barst beiðni um sjúkraflug til Vestmannaeyja þar sem sjúkraflugvél Mýflugs tókst ekki að lenda vegna þoku.
Lesa meira
TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar fór í gær í eftirlits- og æfingaflug sem m.a. var nýtt til ískönnunar við Vestfirði. Þegar svæðið undan Horni var rannsakað með eftirlitsbúnaði flugvélarinnar kom í ljós að á svæðinu eru tveir borgarísjakar
Lesa meira
Landhelgisgæslan nýtur traust 89,8% landsmanna samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Í ár tóku 97% aðspurðra afstöðu til könnunarinnar og dreifist traustið nokkuð jafnt á milli kynja og aldurs aðspurðra. Virðist traust landsmanna til Landhelgisgæslunnar hafa aukist lítilsháttar milli ára
Lesa meira
Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-SYN fór í sitt fyrsta löggsæslu- og eftirlitsflug í gær sem m.a. var notað til eftirlits með loðnuflotanum á Faxaflóa. Samtals voru um 12-14 skip á svæðinu frá Garðskaga að Malarrifi, þar af þrjú færeysk skip og eitt grænlenskt.
Lesa meira