Síðdegis í gær fór fram björgunaræfing á austanverðum Faxaflóa með þátttöku Landhelgisgæslunnar og flugsveitar flugsveitar Bandaríkjamanna sem hefur verið við loftrýmisgæslu frá 8. maí. Þátttakendur æfingarinnar voru varðskipið Þór, þyrla Landhelgisgæslunnar, fulltrúar flugsveitar og C-130 leitar- og björgunarflugvélar Bandaríkjamanna auk stjórnstöðva Landhelgisgæslunnar í Keflavík og Reykjavík.
Lesa meira
Að undanförnu hafa björgunarliðar flugsveitar Bandaríkjamanna farið í æfingar með þyrluáhöfnum Landhelgisgæslunnar þar sem tækifæri hefur gefist til að miðla reynslu og þekkingu beggja aðila. Síðdegis í dag, milli kl. 17:00 og 19:30 fer fram björgunaræfing á Faxaflóa.
Varðskipið ÞÓR hefur að undanförnu verið við eftirlit- og löggæslustörf, en einnig hefur áhöfnin verið við ýmsa þjálfun, m.a. í notkun eldsneytisbúnaðar varðskipsins, DP-æfingar, léttbáta æfingar, æfingakafanir, auk þess sem skipt var um öldumælisdufl undan Straumnesi.
Lesa meira
Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland, nú framkvæmd af flugsveit bandaríska flughersins hefur staðið yfir frá 8. maí. Verkefnið hefur gengið samkvæmt áætlun en þetta er í þriðja sinn sem eftirlitið er í umsjón þeirra.
Lesa meira
Starfsmenn séraðgerða- og sprengjueyðingasviðs Landhelgisgæslunnar, með fulltrúum Fiskistofu hafa að undanförnu verið við eftirlit á Breiðafirði sem m.a. hefur falist í í að fara um borð í báta og kanna veiðileyfi, haffæri, lögskráningu og fleira.
Lesa meira
Landhelgisgæslunni barst kl. 11:40 beiðni um aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir að slys varð við Dyrhólaey þegar stór hluti af bjargbrún hrundi undan ferðamönnum. Fór þyrlan í loftið kl. 11:56 og lenti kl. 12:51 á bílastæði við Dyrhólaey.
Lesa meiraKiwanisklúbburinn Eldfell stendur nú fyrir söfnunarátaki sem felst í sölu á 8GB minnislyklum og verður það fé sem safnast notað til að tækjavæða sjúkraklefa V/S ÞÓR með sambærilegum hætti og um borð í þyrlum Landhelgisgæslunnar. Söfnunin stendur frá 15. maí til 4. júní.
Lesa meira
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF lenti á Reykjavíkurflugvelli kl. 08:35 í morgun með veikan sjómann af bát sem var staddur um fjörtíu sjómílur austur af Hornafirði. Hafði skipstjóri samband við Landhelgisgæsluna kl. 03:15 og fór þyrlan í loftið kl. 03:49.
Lesa meira
TF-LÍF, þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í eftirmiðdaginn til að aðstoða Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins við mosabruna í Kapelluhrauni. Lent var skammt frá vettvangi þar sem slökkvifatan var hengd neðan í þyrluna. Var síðan farið í loftið að nýju og vatn sótt í Kleifarvatn, samtals tíu ferðir og 1700 lítrar í hverri ferð.
Lesa meiraLandhelgisgæslunni barst kl. 16:00 í dag aðstoðarbeiðni frá Neyðarlínunni eftir að maður á sextugsaldri slasaðist er hann féll 10-20 metra við eggjatöku í Aðalvík á Hornströndum. Björgunarskip og bátar Slysavarnarfélagsins Landsbjargar (SL) á svæðinu voru köllaðir út auk þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Lesa meira
Sex stýrimenn Landhelgisgæslunnar útskrifuðust í gær úr 4. stigi varðskipadeildar/Lordinum hjá Fjöltækniskóla Íslands með skipherrapróf á varðskip Landhelgisgæslunnar. Innilega til hamingju með glæsilegan árangur!
Lesa meira
Landhelgisgæslan hefur nú aflýst hættuástandi í Meðallandsbugt og er línubáturinn Páll Jónsson GK7 kominn með Kristbjörgu VE-071 í tog og gengur vel, skipin fjarlægjast land. Björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar frá Vestmannaeyjum og Höfn, björgunarsveitir af Suðurlandi og nærstaddir bátar eru nú á leið af svæðinu. Einnig mun þyrla Landhelgisgæslunnar fljótlega halda til Reykjavíkur.
Lesa meira
Samkvæmt upplýsingum frá aðgerðastjórn Landhelgisgæslunnar er línubáturinn Páll Jónsson GK7 kominn í Meðallandsbugt til aðstoðar neta- og dragnótabátnum Kristbjörgu VE-071 sem varð vélarvana fyrr í kvöld um 1 sjómílu frá landi. Er nú unnið að því að koma dráttartóg yfir í Kristbjörgu og er áætlað að Páll Jónsson muni síðan draga bátinn á haf út. Einnig er Fiskibáturinn Fjöður kominn á staðinn.
Lesa meira
Landhelgisgæslunni barst kl. 21:25 í kvöld aðstoðarbeiðni frá neta- og dragnótabát, með tíu manns í áhöfn sem var vélarvana á Meðallandsbugt norðan við Skarðsfjöruvita og rak í átt að landi. Samstundis voru kallaðar út tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar og er önnur þeirra í biðstöðu í Reykjavík.
Lesa meira
TF-SIF flugvél Landhelgisgæslunnar fór í gær í eftirlits- og ísflug um V- og N-djúp. Í eftirlitsbúnaði flugvélarinnar sáust samtals 722 skip og bátar og vakti athygli mikil umferð báta við Snæfellsnes. Þegar komið var á vesturdjúp var ísröndin mæld en hún var næst landi 68 sml NV af Barða og 68 sml NV af Straumnesi.
Lesa meira
TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar flaug síðdegis í gær yfir nýjasta og eitt af glæsilegustu skipum íslenska flotans, uppsjávarveiðiskipið HEIMAEY VE-1 sem þá var komið inn í íslensku lögsöguna, um 150 sml SV af Vestmannaeyjum. Skipið er væntanlegt til Eyja í dag. Var skipstjóra og áhöfn árnað heilla með óskum um góða heimkomu.
Lesa meira
Varðskip og flugvél Landhelgisgæslunnar hafa að undanförnu verið við eftirlit á SV-djúpi og Reykjaneshrygg en þar er nóg að gera um þessar mundir. Í dag flaug flugvélin TF-SIF um svæðið og flaug hún einnig yfir nýjasta skip íslenska flotans, HEIMAEY VE-1 sem er á leið til landsins frá Chile.
Lesa meira
Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF fór nýverið í eftirlits- og gæsluflug þar sem könnuð var skipaumferð á SV djúpi og Reykjaneshrygg. Í fluginu kom í ljós að á Reykjaneshrygg voru átján togarar frá aðildarlöndum Norð-Austur Atlantshafs Fiskveiðiráðsins - NEAFC, frá Rússlandi, Spáni og Þýskalandi.
Lesa meira
Í blíðviðrinu í dag fór fram athöfn um borð í varðskipinu Þór þar sem Ásatrúarfélagið afhenti Landhelgisgæslu Íslands gjöf upp á tvær milljónir króna sem er framlag félagsins til kaupa á björgunarþyrlu.
Lesa meira
Landhelgisgæslunni barst um kl. 07:30 í morgun aðstoðarbeiðni frá krókaveiðibát með einn mann um borð sem var strandaður á sandrifi NNA af Hrollaugseyjum. Samstundis var haft samband við Ingibjörgu, björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Höfn í Hornafirði sem fór til aðstoðar og var báturinn laus af strandstað um kl. 10:00.
Lesa meiraÞyrla Landhelgisgæslunnar fór nýverið í eftirlitsflug um friðlandið á Hornströndum. Með í för var lögreglumaður og sérfræðingur frá Umhverfisstofnun en tilgangur leiðangursins var m.a. að kanna hvort ummerki væru um ísbirni á þessum slóðum. Var svo ekki en hinsvegar sáust vegsummerki um að vélsleðar hefðu verið þar á ferð. Einnig sást í Fljótavík stórt hvalhræ langt uppí Fljótavatni og vakti það undrun hve langt hræið væri komið upp í vatnið.
Lesa meira
Varðskipið Þór tók í dag þátt í björgunaræfingu í Hvalfirði með bresku freigátunni HMS ST ALBANS og MERLIN þyrlu hennar. Að lokinni æfingu fór fram athöfn til minningar um þá fjölmörgu sem fórust í skipalestum sem leið áttu um Norður Atlantshafið í seinni heimstyrjöldinni. Í tengslum við heimsóknina átti skipherra HMS ST ALBANS fund með Georg Kr. Lárussyni forstjóra Landhelgisgæslunnar þar sem rædd var samvinna þjóðanna á hafinu.
Lesa meiraLandhelgisgæslunni barst kl. 21:43 í gærkvöldi aðstoðarbeiðni frá rússneska togaranum ORLIK sem staðsettur var á Reykjaneshrygg, um 200 sjómílur frá Reykjanesi. Óskað var eftir að þyrla myndi sækja alvarlega veikan skipverja og eftir samtal skipstjóra við þyrlulækni var ákveðið að sækja manninn.
Lesa meira
Aðgerðum vegna strands flutningaskipsins Fernanda lauk kl.15:15 þegar skipið losnað af skerinu og sigldi fyrir eigin afli til hafnar.
Stýrimaður frá varðskipinu Þór og lögreglan eru um borð og hafa tekið skýrslu af skipstjóra en það er fast verklag í aðgerðum sem þessum. Mun rannsóknarnefnd sjóslysa nú taka við gögnum málsins.
Samkvæmt upplýsingum frá aðgerðastjórn Landhelgisgæslunnar í Skógarhlíð hefur áhöfn varðskipsins Þórs, ásamt lögreglu nú rætt við áhöfn Fernanda og mun skipstjóri flutningaskipsins sjálfur reyna að ná skipinu á strandstað á háflóði síðar í dag. Landhelgisgæslan stýrir aðgerðum á vettvangi og fer Auðunn Kristinsson, yfirstýrimaður með framkvæmdastjórn aðgerða.
Lesa meira
Landhelgisgæslunni barst kl. 08:30 í morgun tilkynning um að erlent flutningaskip, Fernanda/J7AM7 væri strandað í innsiglingunni í Sandgerði en skipið missti af beygju þegar það sigldi með lóðs inn í höfnina. Í áhöfn eru 11 manns og allt í lagi um borð. Varðskipið Þór var samstundis kallað til aðstoðar og er það væntanlegt á staðinn upp úr kl. 10:00. Einnig var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út og verður hún til taks á staðnum.
Lesa meiraVarðskipið Þór kom í kvöld til Hafnarfjarðar með prammann Hrapp eftir 836 sjómílna langa siglingu frá Kvamsøya í Noregi. Pramminn er í eigu Suðurverks en var leigður af Ístak fyrir framkvæmdir í Noregi.
Lesa meira
Nú eru um 820 skip og bátar í ferilvöktun hjá Landhelgisgæslunni og vilja varðstjórar í stjórnstöð minna sjómenn á að hlusta á rás 16 sem er neyðar- og uppkallsrás og þeim ber skylda til að hafa opna þegar þeir eru á sjó. Mörg tilfelli hafa komið upp síðastliðinn sólarhring þar sem erfitt hefur verið að ná í þá sem eru að strandveiðum.
Lesa meira
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNA sótti í morgun veikan skipverja um borð í rússneska togarann IOSIF SHMELKIN. Fór þyrlan í loftið kl. 04:50 og var komið að skipinu kl. 06:00 þar sem sigmaður seig niður með börur ásamt þyrlulækni. Var sjúklingur undirbúinn fyrir flutning og síðan hífður um borð í þyrluna.
Lesa meira
Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst á ný þriðjudaginn 8. maí. nk með komu flugsveitar bandaríska flughersins. Verkefnið er í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Alls munu um 150 liðsmenn bandaríska flughersins taka þátt í verkefninu.
Lesa meiraLandhelgisgæslunni barst kl. 14:25 aðstoðarbeiðni frá áhöfn rússnesks togara sem staðsettur er um 260 sjómílur frá Reykjavík. Var túlkur fenginn til aðstoðar í stjórnstöðinni og fengust þá þær upplýsingar frá lækni um borð að um væri að ræða veikan skipverja sem ekki væri lífshættulega veikur en samt sem áður yrði hann að komast á sjúkrahús.
Lesa meira
Mikið var um að vera í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í dag á fyrsta degi strandveiðanna en um kl. 07:00 í morgun voru um sjö hundruð skip í fjareftirliti en um kl. 15:30 hafði talan farið niður í 670 skip utan hafna. Þurfa allir bátar sem fara til strandveiða að tilkynna Landhelgisgæslunni brottför og komu til hafnar.
Rétt fyrir klukkan níu í kvöld barst Landhelgisgæslunni neyðarkall frá fiskibátnum Lóu sem staðsettur var um 0,5 sml NV af Látrabjargi. Sagði hann nærstaddan bát, Krumma, vera kominn á hliðina og skipverji bátsins kominn í sjóinn.
Lesa meira
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti í morgun veikan sjómann um borð í fiskiskip sem staðsett var við Grímsey.TF-GNA fór í loftið kl. 07:06 og var flogið beint á staðinn þar sem maðurinn var hífður um borð í þyrluna. Haldið var frá skipinu kl. 11:33 og lent við Landspítalann í Fossvogi um kl. 13:15.
Lesa meira
Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-LIF, kom til Reykjavíkur eftir hádegi í dag eftir að hafa verið í skoðun sem fór fram í Noregi. Eflaust hefur koma þyrlunnar vakið athygli því þegar þyrlan kom til Reykjavíkur voru TF-GNA og TF-SYN að koma úr verkefnum og fylgdu þær TF-LIF inn til lendingar á Reykjavíkurflugvelli. Með komu TF-LIF til landsins er Landhelgisgæslan á ný með þrjár þyrlur til taks.
Lesa meira