Fréttayfirlit: apríl 2015
Fimmtíu ár frá því þyrluflug hófst hjá Landhelgisgæslunni
Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF heldur til eftirlits- og björgunarstarfa á Miðjarðarhafi
Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF hélt nú rétt fyrir hádegi í dag áleiðis til Sikileyjar til starfa fyrir Frontex, Landamærastofnun Evrópusambandsins. Mun flugvélin sinna landamæragæslu á vegum Frontex fram til loka júlí en snýr þá aftur á heimaslóðir.
Leikskólinn Sóli heimsækir varðskipið Þór í Vestmannaeyjum
Nú á dögunum fékk varðskipið Þór skemmtilega heimsókn er varðskipið var í Vestmannaeyjum. Leikskólinn Sóli kíkti um borð með fimmtán eldhressa og fróðleiksfúsa krakka auk nokkurra kennara.
Landhelgisgæslan tekur þátt í flugmessu í Grafarvogskirkju
Landhelgisgæslan tók í dag þátt í flugmessu sem haldin var í Grafarvogskirkju. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-SYN flaug yfir svæðið og lenti síðan á bílaplaninu við kirkjuna með presta sem þátt tóku í messunni. Tók áhöfn þyrlunnar einnig þátt í messunni ásamt fleiri starfsmönnum Landhelgisgæslunnar og fólki héðan og þaðan úr flugstarfsemi hér á landi.
Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna konu sem fannst meðvitundarlaus í sundlauginni á Hellu
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst nú klukkan 13:48 í dag beiðni um þyrlu vegna konu sem fundist hafði meðvitundarlaus í sundlauginni á Hellu. Konan komst fljótlega til meðvitundar en hins vegar var það mat læknis á staðnum og læknis í áhöfn þyrlunnar að sækja konuna og flytja hana til Reykjavíkur.
Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar gera óvirkt tundurdufl í Vestmannaeyjum og sprengjukúlu nálægt Hafravatni
Það hefur verið mikið að gera hjá sprengjusérfræðingum Landhelgisgæslunnar að undanförnu. Síðasta vetrardag gerðu þeir óvirkt tundurdufl sem kom í nót dragnótarbátsins MAGGÝ VE-108 og í gær, sumardaginn fyrsta gerðu þeir óvirka sprengjukúlu sem fannst nálægt Hafravatni.
Landhelgisgæslan óskar landsmönnum öllum gleðilegs sumars
Starfsmenn Landhelgisgæslunnar hafa staðið vaktina í dag sem og aðra daga og nóg hefur verið að gera við æfingar og fleira. Áhafnir varðskipsins Þórs og þyrlunnar TF-LIF voru við samæfingar í dag og áhöfnin á Tý var við eftirlit á Miðjarðarhafi tilbúin til björgunarstarfa.
Starfsmenn innanríkisráðuneytis og fjölskyldur þeirra í heimsókn í flugskýli Landhelgisgæslunnar
Starfsmenn innanríkisráðuneytisins og fjölskyldur þeirra heimsóttu flugskýli Landhelgisgæslunnar í dag og kynntu sér starfsemina. Gestirnir skoðuðu þyrlur og flugvél Landhelgisgæslunnar og fylgdust með þyrlunni TF-LIF taka á loft en hún var á leið á Reykjanesið að taka þátt í flugslysaæfingu sem þar fer nú fram.
Sprengjueyðingarsveit Landhelgisgæslunnar æfir með áhöfn danska varðskipsins TRITON
Sprengjueyðingarsveit Landhelgisgæslunnar hélt sprengjuæfingu með áhöfn danska varðskipinu HMS TRITON í vikunni að beiðni stjórnenda skipsins en skipið var þá statt í Reykjavík. Nauðsynlegt er fyrir báða aðila að halda slíkar æfingar með reglubundnum hætti en náið og gott samstarf er milli danska sjóhersins og Landhelgisgæslunnar á mörgum sviðum.
Fundur norræna sjómælingaráðsins haldinn í Reykjavík
Tveggja daga fundi norræna sjómælingaráðsins (Nordic Hydrographic Commisson, NHC), sem í þetta sinn var haldinn í Reykjavík, lauk nú í vikunni. Landhelgisgæslan er ábyrg fyrir sjómælingum og sjókortagerð á hafsvæðinu kringum Ísland og er hluti af norræna sjómælingaráðinu.
Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins kynnir sér varðskipið Þór
Jens Stoltenberg framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins kom nú síðdegis ásamt fylgdarliði í stutta heimsókn um borð í varðskipið Þór. Innanríkisráðherra, Ólöf Norðdal og Georg Kristinn Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar tóku á móti framkvæmdastjóranum og fylgdarliði hans.
Framkvæmdastjóri NATO, Jens Stoltenberg heimsækir Landhelgisgæsluna
Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, kom til Íslands í dag, fimmtudag í boði forsætisráðherra. Hans fyrsta verk var að kynna sér varnartengd verkefni Landhelgisgæslu Íslands á Öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og loftrýmisgæslu Bandaríkjanna, sem fram fer nú um stundir undir merkjum Atlantshafsbandalagsins.
Varðskipið Týr komið til hafnar á Ítalíu með flóttamennina sem áhöfnin bjargaði á mánudag
Varðskipið Týr kom til hafnar í Taranto á Ítalíu rétt rúmlega hálfátta í morgun að íslenskum tíma með flóttamennina sem áhöfnin bjargaði úr lekum bát um 50 sjómílur norðvestur af Trípólí síðastliðinn mánudag.
Varðskipið Týr aðstoðaði dráttarskip við björgun flóttafólks í gær – heyrðu skothvelli í fjarska
Áhöfnin á varðskipinu Tý aðstoðaði í gær dráttarskip við björgun flóttafólks um 60 sjómílur út af strönd Líbýu, í beinu framhaldi af björgun áhafnar varðskipsins á 342 flóttamönnum. Um það leyti sem búið var að bjarga flóttafólkinu um borð í dráttarskipið, kom hraðbátur að dráttarskipinu sem virtist vera kominn á vettvang í þeim tilgangi að ná til baka bátnum sem flóttafólkið var á.
Áhöfnin á varðskipinu Tý bjargar 342 flóttamönnum af lekum trébát norðvestur af Trípólí
Varðskipið Týr bjargaði nú rétt í þessu 342 flóttamönnum af litlum trébát um 50 sjómílur norðvestur af Trípólí en mikill leki var kominn að bátnum. Fjöldi kvenna og barna er í þessum hópi eða alls 135 konur og 27 börn. Nokkrar kvennanna eru barnshafandi.
Eldur um borð í hvalaskoðunarbát
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst tilkynning kl. 10:30 um að eldur hefði komið upp í hvalaskoðunarbátnum Faldi á Skjálfanda. Alls voru 24 farþegar um borð og voru þeir fluttir um borð í hvalaskoðunarbátinn Bjössa Sör sem var í grenndinni.
- Fyrri síða
- Næsta síða