Fréttayfirlit: nóvember 2015
Eldur um borð í fiskibát
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst nú klukkan 12 á hádegi neyðarskeyti frá bát sem staddur var rétt austan við Vestmannaeyjar en eldur hafði komið upp um borð.
Há sjávarstaða næstu daga
Landhelgisgæsla Íslands vill vekja athygli á hárri sjávarstöðu næstu daga en flóðhæð nær hæst 4,5 metrum.
Annasamar eftirlits- og löggæsluferðir varðskipanna
Varðskipið Þór kom til hafnar fyrir skemmstu eftir afar annasama eftirlits- og löggæsluferð um miðin. Í ferðinni var meðal annars lögð áhersla á almennt fiskveiði- og öryggiseftirlit um borð í skip og báta.