Fréttayfirlit: desember 2015
Gleðilegt nýtt ár - annáll Landhelgisgæslunnar 2015
Landhelgisgæsla Íslands óskar landsmönnum og samstarfsaðilum gleðilegs nýs árs og þakkar samfylgdina á árinu sem er að líða. Landhelgisgæslan hefur á að skipa öflugu starfsfólki sem leggur allan sinn metnað í að leysa farsællega úr þeim verkefnum sem þeim er treyst fyrir. Við þökkum landsmönnum það traust sem þeir hafa sýnt Landhelgisgæslunni og munum við áfram leggja metnað okkar í að vera til taks - með öryggi og fagmennsku að leiðarljósi. Hér má sjá nokkur atriði úr afar annasömu og viðburðarríku ári í starfsemi Landhelgisgæslunnar.
Þyrla Landhelgisgæslunnar sækir fimm erlenda göngumenn í Emstrur
Þyrlan lögð af stað frá Breiðdalsvík
Erfiðar veðuraðstæður í sjúkraflugi - þyrlunni tekist að komast á Breiðdalsvík
Þyrla Landhelgisgæslunnar í sjúkraflug á Neskaupstað
Gleðileg jól
Landhelgisgæslan óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla.
Jólastund starfsmanna Landhelgisgæslunnar
Starfsmenn Landhelgisgæslunnar komu í gær, fimmtudag saman til árlegrar jólastundar þar sem meðal annars hlýtt var á upplestur jólaguðspjallsins og starfsmenn er hófu töku eftirlauna á árinu heiðraðir.
Fjörutíu ár frá ásiglingu breskra dráttarbáta á varðskipið Þór innan 12 sjómílna landhelgi
Í dag, 11. desember eru liðin 40 ár frá því siglt var á varðskipið Þór af breskum dráttarbátum í mynni Seyðisfjarðar. Skipherrann á Þór, Helgi Hallvarðsson tók þá ákvörðun að skjóta að bátunum sem hrökkluðust í burtu. Þór stórskemmdist en engin slys urðu á áhöfn varðskipsins.
Vökul augu varðstjóra í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar - Þór sendur á vettvang
Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar stóðu vaktina í óveðurstíðinni og fylgdust vel með allri skipaumferð um miðin en reynsla þeirra og þekking á aðstæðum hefur oftar en ekki skipt sköpum í aðstæðum eins og mynduðust í veðurofsanum.
Mikill viðbúnaður vegna neyðarkalls í Eyjafirði
Um kl. 14:45 í dag heyrðu varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar að kallað var í tvígang „MAYDAY, MAYDAY“ á rás 16, neyðar- og uppkallsrás skipa og báta. Kallið kom inn á móttökuloftnet sem staðsett er á Vaðlaheiði austan megin við Eyjafjörð.