Árleg jólastund starfsmanna haldin í dag

Starfsmenn Landhelgisgæslunnar komu saman í dag til árlegrar jólastundar sem er ómissandi þáttur í starfseminni á aðventu. Georg Kristinn Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar flutti ávarp þar sem hann meðal annars hrósaði starfsmönnum fyrir dugnað og elju við úrlausn fjölmargra vandasamra verka á árinu sem einnig er 90 ára afmælisár Landhelgisgæslunnar.

Hlýtt var á upplestur jólaguðspjallsins sem að þessu sinni var lesið af Sverri Guðmundi Harðarsyni, starfsmanni í séraðgerða- og sprengjueyðingarsveit Landhelgisgæslunnar og nýútskrifuðum kafara. Þá kom sönghópurinn Lyrika í heimsókn og söng inn jólin með fallegum tónum.

Tveir starfsmenn sem hófu töku eftirlauna á árinu voru sérstaklega heiðraðir, þeir Lárus Jóhann Jóhannsson vaktstjóri í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og Steinar Már Clausen varðstjóri í varðskýli Landhelgisgæslunnar á Faxagarði og fyrrum bátsmaður sem fór nú á eftirlaun eftir 44 ára farsælt starf. Þá voru einnig heiðraðir þeir starfsmenn sem fögnuðu fimmtugs- og sextugsafmælum á árinu.

Hér eru nokkrar myndir frá þessari hátíðlegu jólastund sem Jón Páll Ásgeirsson stýrimaður tók.


Greinilega eitthvað skemmtilegt í gangi. Frá vinstri: Ragnheiður Þórólfsdóttir gjaldkeri, Linda María Runólfsdóttir launafulltrúi, Harpa Karlsdóttir fulltrúi á mannauðssviði, Steinvör Gísladóttir ritari forstjóra og Snjólaug Guðjohnsen sjókortagerðarmaður.

Mjög glaðir þessir enda fá þessir að hanga í vinnunni; þeir eru allir sigmenn sem sagt. Frá vinstri: Henning Þór Aðalmundsson, Guðmundur Ragnar Magnússon, Hreggviður Símonarson og Gísli Valur Arnarson.

Hið stórglæsilega rekstrarsvið Landhelgisgæslunnar. Frá vinstri; Andrea Jónsdóttir bókari, Sandra Margrét Sigurjónsdóttir framkvæmdastjóri rekstrarsviðs, Margrét Óskarsdóttir bókari, Fríða Aðalgeirsdóttir deildarstjóri rekstrargreiningar og Berglind Hrönn Edvardsdóttir bókari.

 
Sönghópurinn Lyrika söng af stakri snilld og kom öllum í jólaskap.


Georg Kristinn Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar heiðrar Lárus Jóhann Jóhannsson.

Steinar Már Clausen heiðraður af forstjóra eftir 44 ára starf.

Glæsilegir kappar þeir Steinar Már Clausen og Lárus Jóhann Jóhannsson.