Leysibendi beint að þyrlu LHG

TF-GNA á leið í sjúkraflug til Vestmannaeyja þegar atvikið varð

Leysibendi var beint að þyrlu Landhelgisgæslunnar þegar hún var á flugi yfir íbúabyggð í Reykjavík í gærkvöld. Þyrlan var á leið í útkall þegar atvikið varð. Geislanum var beint að vinstri hlið vélarinnar í stutta stund og truflaði hann flugið því lítið. Áhöfn þyrlunnar ber hins vegar saman um að veruleg hætta hefði geta skapast hefði geislinn hitt á framrúðuna og blindað flugmennina. 

Það var á níunda tímanum í gærkvöld sem stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst beiðni frá lækni í Vestmannaeyjum um að þyrla sækti þangað sjúkling. Vegna lélegs skyggnis í Eyjum var ekki unnt að senda sjúkraflugvél. 

Laust fyrir klukkan tíu fór þyrlan TF-GNA í loftið og var leysibendlinum beint að henni skömmu síðar. TF-GNA lenti á Vestmannaeyjaflugvelli um fimmtíu mínútum eftir brottför frá höfuðborginni en þar beið sjúkrabíll með sjúklinginn. 

Þyrlan lagði aftur af stað til Reykjavíkur klukkan ellefu og lenti hún á Reykjavíkurflugvelli upp úr hálftólf. Þaðan var sjúklingurinn fluttur á Landspítalann á Hringbraut. Þetta mun vera í fimmta sinn á þessu ári sem Landhelgisgæslan sinnir sjúkraflugi til Vestmannaeyja.