Týr bjargar pólskri skútu
Varðskipið Týr kom pólskri skútu til bjargar í dag. Skútan var vélarvana með rifin segl. Hún var á leið frá Reykjavík til Vestmannaeyja og ætlaði síðan að koma við í Skotlandi á leið til Póllands.
Meðfylgjandi myndir voru teknar um fjögurleytið í dag er flugvél Landhelgisgæslunnar, Syn, flaug yfir varðskipið Tý. Eins og sjá má á myndunum er léttbátur varðskipsins Týs að draga skútuna.
Skipstjóri skútunnar kallaði eftir hjálp á rás 16 þar sem skútan var vélarvana með rifin segl. Vaktstöð siglinga/stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kallaði þegar eftir aðstoð nærstaddra skipa. Varðskipið Týr var skammt undan og hélt strax á svæðið.
Léttbátur varðskipsins Týs hefur nú dregið skútuna inn í Keflavíkurhöfn. Um borð voru níu manns og eru þeir allir heilir á húfi.
Dagmar Sigurðardóttir
lögfræðingur/upplýsingaftr.