Nýtt varðskip.
Nýlega efndu Ríkiskaup f. h. Landhelgisgæslu Íslands til lokaðs útboðs í kjölfar forvals vegna smíði á nýju varðskipi fyrir LHG. Í forvalinu var auglýst eftir þátttakendum í lokað útboð og urðu eftirtaldir aðilar fyrir valinu;
Aker frá Noregi, Asmar frá Chile, Bergen frá Noregi, Damen frá Hollandi, Peene-Werft frá Þýskalandi og SIMEK frá Noregi.
Helstu kröfur sem settar voru fram í útboðsgögnum varðandi skip og búnað:
Nauðsynlegt að nýtt varðskip fyrir LHG verði hannað og útbúið þannig að það hafi getu til að gegna ákveðnum verkefnum og hafi ákveðna eiginleika s.s.:
- Löggæsla
- Fiskveiðieftirlit
- Auðlindagæsla innan efnahagslögsögunnar
- Leit og björgun
- Sjúkraflutningar – fólksflutningar
- Björgunar – dráttar og köfunarstörf
·
- Til að sinna og stjórna leitar- og björgunarstörfum á hafinu umhverfis Ísland við verstu aðstæður.
- Flutningur á björgunarliði og búnaði.
- Búnaður til að láta þyrlu á hangflugi (hover) hafa eldsneyti (HIFR búnaður)
- Stjórnstöð í stærri björgunaraðgerðum
Um mat á tilboðum
Ákveðið hefur verið hvaða þættir munu ráða mestu við valið og eftirfarandi viðmið verið sett:
Verð mun ráða 35% ( Líftímakostnaður til 15 ára)
Tæknileg útfærsla, hönnun og hvernig kröfur eru uppfylltar ráða 50%
Framleiðandi; gæði vélbúnaðar og tækja ræður 15%
M/V TYR - Helstu stærðir |
Nýtt varðskip - Helstu stærðir |
Eigin þyngd ......................... 342 Tonn Lengd ................................. 71,15 M Breidd .................................. 10,00 M Mesta djúprista ...................... 5,80 M Ganghraði á 90% krafti (MCR) 17.8 Hnútar Togkraftur ............................. 56 Tonn |
Eigin þyngd .......................... 1,000 Tonn Lengd.................................. . 80 – 90 M Breidd.................................. . 15 - 16 M Mesta djúprista...................... .... 6.50 M Ganghraði á 90% krafti (MCR)... . 18 Hnútar Togkraftur .........................100 Tonn min. Olíu- flutningstankar ..A.m.k. 500 - 1000 m3 (Fyrir mengunarolíu – Upphitun). |
Eftirfarandi tilboð bárust:
SIMEK 33.100.000.- Evrur Peene-Werft 36.800.000.- Evrur
Damen 30.600.000.- Evrur Asmar 27.261.000.- Evrur og
boð nr. 2 27.863.000.- Evrur
Nú þegar tilboð hafa verið opnuð tekur við vinna við að yfirfara þau og meta og er stefnt er að undirritun samnings um miðjan nóvember.