Fiskidagar í Dalvík

Sveinbjörg Guðmarsdóttir tók þessar skemmtilegu myndir af komu Ægis á Fiskidaga á Dalvík, nú fyrir skemmstu. Við þetta tækifæri var Kristján Þ. Jónssyni skipherra gefin, f.h. Landhelgisgæslunnar mynd af Ægi sem máluð var af Karenu Dögg Geirsdóttur, sem siglt hafði með varskipinu sem nemandi nú í sumar.



Kristján Þ. Jónsson skipherra ásamt listamanninum Karenu Dögg Geirsdóttur frá Akureyri og samnemendum hennar þeim Írisi Evu Einarsdóttur úr Mosfellsbæ og Hallbjörgu Erlu Fjeldsted frá Borgarnesi.