Mikið magn skotfæra frá stríðsárunum fannst í Öskjuhlíð

  • Sprengiefni_Oskjuhl_230508_2

Þriðjudagur 27.maí 2008

Nýverið rakst maður á göngu í Öskjuhlíð á gömul skot við göngustíg. Hann tilkynnti fundinn til Lögreglu sem fór strax á staðinn. Lögreglan kallaði til sprengjusérfræðinga Landhelgisgæslunnar. Í ljós kom að þar var um að ræða umtalsvert magn af riffil- og skambyssuskotum, allt merkt ártalinu 1941 auk þess sem þarna voru forsfórblys sem geta verið mjög varasöm í höndum ókunnugra. Svo lítur út sem skotfærin og blysin hafi verið urðuð þarna á stríðsárunum, en þá voru sem kunnugt er, mikil hernaðarumsvif við Reykjavíkurflugvöll. Allt efnið var grafið upp, fjarlægt og því eytt af sprengjusérfræðingum Landhelgisgæslunnar.

Rétt er að beina þeim tilmælum til almennings sem kynnu að rekast á skotfæri eða sprengjur að hreyfa ekki við hlutunum heldur hafa tafarlaust samband við lögreglu eða stjórnstöð Landhelgisgæslunnar, í síma 112.

Sama gildir ef fólk hefur í fórum sínum gömul skotfæri eða sprengjur, þá er það hvatt til að hafa samband og koma því til eyðingar hjá sprengjudeild Landhelgisgæslunnar. Gamalt sprengiefni getur verið mjög hættulegt.

Sprengiefni_Oskjuhl_230508
Sprengisérfræðingar LHG komnir til starfa á staðnum
(Mynd: Sigurður Ásgrímsson)
Sprengiefni_Oskjuhl_230508_2
Sprengiefnið (Mynd: Sigurður Ásgrímsson)
Sprengiefni_Oskjuhl_230508_4
Um umtalsvert magn var að ræða (Mynd: Sigurður Ásgrímsson)
Sprengiefni_Oskjuhl_230508_3
Efnið var flutt á brott til förgunar (Mynd:Sigurður Ásgrímsson)

27.05.2008 SRS