Landhelgisgæslan í viðbragðsstöðu vegna hvítabjarnar í Skagafirði

Þriðjudagur 17.júní 2008

Landhelgisgæslan hefur verið í viðbragðsstöðu vegna ísbjarnar sem kom fram við Hraun í Skagafirði í gær en var felldur undir kvöld í dag. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNA, var flogið á Sauðárkrók í gær og var þar í viðbragðsstöðu, ef grípa þyrfti til aðgerða og til að flytja sérfræðing á svæðið.  Varðskip hélt til hafnar og var undirbúið til að flytja björninn.  TF-GNA lenti í Reykjavík um klukkan  19:30.

17.06.2008 SRS