Eftirlitsflug um Vestfirði í dag

Miðvikudagur 18.júní 2008

Fyrirhugað er að þyrla Landhelgisgæslunnar fari í eftirlitsflug um Hornstrandir í dag til að svipast um hvort ísbirnir sjáist á svæðinu. Eftirlitið fer fram í nánu samstarfi við Umhverfisstofnun.

Ætlunin er að fljúga aftur yfir svæðið á næstu dögum. Eins verður hefðbundnu ískönnunarflugi á Fokker flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SYN, haldið áfram.

18.06.2008 SRS