Samstarfsyfirlýsing bandarísku strandgæslunnar og Landhelgisgæslu Íslands

Fimmtudagur 30. Október 2008

Fréttatilkynning frá Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu.

Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra og Thad W. Allen, yfirmaður bandarísku strandgæslunnar undirrituðu í gær yfirlýsingu um samstarf strandgæslunnar og LHG á fundi í Washington.

Yfirlýsingin byggist á samkomulagi Bandaríkjanna og Íslands frá 11. október 2006 um öryggis- og varnarmál, en þar eru ákvæði um samstarf borgaralegra stofnana landanna á sviði öryggismála. Með ráðherra í för var Þórunn Hafstein skrifstofustjóri í Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu.

Samkvæmt yfirlýsingunni munu strandgæslan og Landhelgisgæslan styrkja samstarf sitt á ýmsum sviðum, svo sem við leit og björgun, stjórn á siglingum, mengunareftirlit á hafinu og almenna öryggisgæslu þar. Þá er einnig gert ráð fyrir sameiginlegri þjálfun og menntun starfsmanna eftir því sem nauðsynlegt er til að treysta samstarfið sem best.

30.10.2008/HBS

US_strandg_undirskr
Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra og Thad W. Allen,
yfirmaður bandarísku strandgæslunnar við undirritun samningsins