Nauðsyn eftirlits- og gæslustarfa á hafi úti

Mánudagur 17. Nóvember 2008

Síðastliðinn föstudag kom glögglega í ljós nauðsyn þess að hafa varðskip Landhelgisgæslunnar við eftirlit og löggæslustörf á hafi úti. Varðskip LHG hafði samband við stjórnstöð LHG til að grennslast fyrir um skip á suðurleið undan Sandvík. Stjórnstöð taldi skipið vera við höfn í Reykjavík en við nánari eftirgrennslan kom í ljós að svo var ekki. Haft var samband við skipið og í ljós kom að það hélt úr Reykjavíkurhöfn á föstudagsmorgunn og var á leið til Noregs með erlenda áhöfn um borð, var skipið þó skrásett á Íslandi og bar þar af leiðandi að fylgja íslenskum lögum.

Stýrimenn varðskipsins fóru um borð í skipið til eftirlits. Fjórir erlendir menn voru um borð, skipstjóri, stýrimaður og tveir vélstjórar. Engin áhafnartrygging var í gildi, enginn skipverji lögskráður og gat aðeins skipstjóri framvísað norsku skírteini. Hafði skipið ekki tilkynnt sig til stjórnstöðvar LHG samkvæmt reglum þar að lútandi.

Var skipinu beint til Þorlákshafnar,  auk þess sem lögreglu og Siglingastofnun Íslands var gert viðvart. Hélt skipið síðan úr höfn á laugardag eftir að gengið var frá málum þess hér á landi og komin var lögskráð áhöfn um borð.

Fjareftirlit stjórnstöðvar LHG tryggir ákveðið öryggi sjófarenda en tilgangur þess er jafnframt að halda uppi löggæslu á sjó.  Með þessu móti er fylgst með skipaumferð og ef skip tilkynna ekki ferðir sínar má segja að þeir séu á eigin ábyrgð.  Það getur í það minnsta seinkað björgunaraðgerðum ef neyðarsendir fer í gang á svæði þar sem ekki er vitað um neitt skip á sjó. 

17.11.2008/HBS

Myndina tók Guðmundur St. Valdimarsson, bátsmaður.