Fréttir

Sprengikúla fannst í El Grillo

13. júl. 2006

12. júlí

 

Í síðustu viku fór sprengjudeild Landhelgisgæslunnar í enn eina ferð að flaki El Grillo frá síðari heimsstyrjöldinni, sem liggur á botni Seyðisfjarðar.  Við þetta tækifæri var Landhelgisgæslan vöruð við möguleikanum á að sprengikúlur úr einni af byssum El Grillo hefðu fundist af köfurum, á meðan að þeir voru að fjarlægja hluta af festingu frá einni af fallbyssum skipsins fyrir hönd Seyðisfjarðarbæjar. 

 

Kafarar frá sprengjudeild Landhelgisgæslunnar með aðstoð frá köfurum V/S Ægis fundu fljótt þá hluti sem lýst höfðu verið af köfurunum og var einn þeirra “3 inch” (76.2 mm) sprengikúla úr “12 Pounder” loftvarnabyssu El Grillo.  Sprengikúlan, sem var í mjög góðu ástandi miðað við að hafa verið meira en 60 ár í sjó, var fjarlægð með sérstökum búnaði úr skipsflakinu og síðan eytt. 

 

Frá því 1972 hefur Landhelgisgæslan, í nokkrum sérstaklega skipulögðum aðgerðum, fjarlægt yfir 500 sprengur úr El Grillo, þar á meðal djúpsprengjur, rakettur, blys og skotfæri af ýmsum stærðum.  Í flestum tilvikum hafa þeir hlutir, sem fundist hafa, verið í mjög góðu ástandi og sprengiefnin í djúpsprengjunum og sprengivopnin jafn hættuleg og daginn sem þau voru framleidd.

 

Adrian J. King

sprengjusérfræðingur

Landhelgisgæsla Íslands

 

12 pounder byssa eins og var á El Grillo

3 inch sprengjukúlur fannst í El Grillo af LHG




Þetta vefsvæði byggir á Eplica