Fréttir

Ekki má henda öllu á Sorpu.

11. júl. 2006

11. júlí. 

Starfsmönnum sprengjudeildar Landhelgisgæslu Íslands er kunnugt um að vopna- og sprengiefnafundir á Íslandi eru ekki bundnir við fyrrum æfingarsvæði hersins.  Meðfylgjandi myndir sýna tvö nýleg tilfelli, þar sem virk vopn og sprengiefni fundust, annaðhvort þar sem fólk var að hreinsa út af háalofti og kjöllurum eða reyndi að losna við hlutina með því að fara með þá í SORPU.

 

Landhelgisgæslan fæst við fjölmörg svona tilfelli á hverju ári. Gömul vopn, sérstaklega frá stríðsárunum virðast vera til á íslenskum heimilum í miklu meira mæli  en ætla mætti.  Margir þessara hluta eru virkir og innihalda sprengiefni, sem með undir ákveðnum kringumstæðum og/eða við meðhöndlun, munu virka jafn skilvirkt og daginn sem þau voru gerð, án tillits til aldurs hlutarins.   Í sumum tilfellum hafa verið gerðar klaufalegar tilraunir til að gera hlutinn öruggan, en það gerir oft illt verra og getur verið lífshættulegt.

 

Sprengjusveit Landhelgisgæslunnar hvetur fólk til að hafa samband strax ef það hefur í fórum sínum hverskonar stríðsminjar eða hernaðarlega hluti eða hvaða aðra hættulega hluti sem þeir kunna að eiga.  Það er ábyrgðarhluti og reyndar vítavert kæruleysi að varðveita slíka hluti sem hæglega geta valdið slysum og manntjóni. Stranglega bannað er að reyna að losna við þá í ruslatunnur eða hjá SORPU.

 

Gerðu því það sem er öruggt og skynsamlegt:  Hafðu samband við sprengjusveit Landhelgisgæslu Íslands núna í síma 545 2100.

 

Adrian J. King

sprengjusérfræðingur

Landhelgisgæslu Íslands

 

 

 

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica