Fréttir

Nýjir flugstjórar hjá Landhelgisgæslunni.

10. júl. 2006

Mánudagur 10. júlí.

Tveir flugmenn Landhelgisgæslunnar, þeir Sigurður H. Wiium og Björn Brekkan hafa hlotið stöðu flugstjóra hjá stofnuninni. Báðir hafa unnið um árabil sem flugmenn hjá Landhelgisgæslunni. Þeir hafa verið í þjálfun að undanförnu og tóku flugstjóraprófið í Marseilles í Frakklandi nú fyrir skemmstu.


Flugstjórarnir Sigurður H. Wiium og Björn Brekkan

Jóhann Baldursson
lögfræðingur/upplýsingaftr.
Landhelgisgæslu Íslands

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica