Fréttir

80 ára afmæli Landhelgisgæslu Íslands

07. júl. 2006


Þann 1. júlí síðastliðinn var haldið upp á 80 ára afmæli Landhelgisgæslu Íslands og sama daginn tóku ný lög nr. 52/2006 um Landhelgisgæslu Íslands gildi. Fleira sögulegt gerðist þann dag því að varðskipið Óðinn kom um morguninn úr sinni síðustu ferð í þjónustu Landhelgisgæslunnar. Um borð voru Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra og Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar.

Varðskipið Ægir sigldi með Óðni inn í Reykjavíkurhöfn í tilefni dagsins, skipin voru fánum prýdd og skipslúðrar þeyttir. Sprengjusveit Landhelgisgæslunnar skaut átta fallbyssuskotum við Faxagarð í heiðursskyni.

Sigurður Steinar Ketilsson skipherra stjórnaði varðskipinu Óðni í þessari síðustu ferð. Hann tók á móti gestum, ásamt dómsmálaráðherra og forstjóra Landhelgisgæslunnar um borð. Við það tækifæri afhenti forstjórinn dómsmálaráðherra fyrsta eintakið af nýútkomnum bæklingi um Landhelgisgæsluna. 
 
Meðal gesta voru starfsmenn Landhelgisgæslunnar, bæði núverandi og fyrrverandi, borgarstjórinn í Hull (sjóliðsforinginn af Humber) ásamt bæjarráðsmönnum og útgerðarmönnum frá Hull auk fjölmiðlafólks.

Afmælisins verður minnst með margvíslegum hætti síðar á árinu.
(Mynd Jón Kr. Friðgeirsson)

Jóhann Baldursson,
lögfræðingur/upplýsingaftr.
Landhelgisgæsla Íslands




Þetta vefsvæði byggir á Eplica