Skipt um búnað á Hellisheiði eystri

  • Hellisheidi1

Föstudagur 20 febrúar 2009

Í vikunni var gerður út leiðangur á Hellisheiði eystri til endurbóta á biluðum fjarskiptabúnaði sem Vaktstöð siglinga notar til að taka á móti skeytum frá skipum og bátum á norð-austurmiðum.

Tókst leiðangurinn mjög vel en eins og oft áður þegar mikið liggur við, var gott að geta leitað til björgunarsveitanna.  Félagar í björgunarsveitinni Vopna fóru með starfsmann Neyðarlínunnar á heiðina og voru tvö ný loftnet voru sett upp í stað þeirra sem biluð voru. Ættu því skip og bátar að vera komin í gott samband við VSS.

Á heimasíðunni www.vopnafjordur.is   kom fram að óvenju lítill snjór er á veginum upp á Hellisheiði miðað við árstíma og ekki reyndist mikið mál að komast upp á vel búnum björgunarsveitarbílum þrátt fyrir brattann og aðstæður .

Myndir tók Jón Sigurðarson

20.02.2009/HBS

Hellisheidi2