Bylting í öryggis- og björgunarmálum Íslendinga

  • Dash8_smidi_jun2008_2

TF-SIF kemur til landsins á undan áætlun

3. apríl 2009

Ný flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SIF kemur til landsins þann 9. júlí og er það nokkuð á undan áætlun. Smíði flugvélarinnar hefur gengið ævintýralega vel miðað við að þarna er á ferðinni fullkomnasta eftirlitsflugvél þessarar tegundar í heiminum. Vélin er af gerðinni Dash-8 Q300 og eru samskonar flugvélar notaðar hjá strandgæslum og eftirlits- og björgunaraðilum víða um heim. Vélin verður afhent Landhelgisgæslunni til prófana þann 9. júní og er svo áætluð til landsins þann 9. júlí eins og áður segir.

Kaupsamningur var undirritaður í maí 2007 og var samningsverð 32,2 milljónir dollara. Allar áætlanir um tíma og verð hafa staðist fullkomlega.  Ef eitthvað er mun verkið verða undir kostnaðaráætlun.

Dash8_1_Mars09

Tekið fyrir tveimur vikum í verksmiðju Bombardier, mynd Höskuldur Ólafsson.

 

Vélin er smíðuð hjá Bombardier í Kanada en ísetning tæknibúnaðar fer fram hjá Field Aviation í Kanada. 

Þjálfun á flugvélina er að hefjast og fara fyrstu aðilar utan nú um helgina.

Notkunarmöguleikar flugvélarinnar til öryggis og löggæslu sem og leitar og björgunar eru nánast ótakmarkaðir. Meðal annars býr vélin yfir öflugri infrarauðri myndavél sem bæði getur tekið myndir frá hlið og beint fram, jafnt að nóttu sem degi. Með þessari tækni er hægt að greina athafnir skipa með ótrúlegri nákvæmni sem og mengun sem þýðir gjörbreytingu í auðlindagæslu og umhverfisvernd. Þá verður umbylting í möguleikum í leit á sjó og landi þar sem þessi tækni nemur umhverfið með hætti sem ekki er til staðar hér á landi í dag.

Á sviði almannavarna skapast jafnframt nýir möguleikar við að greina breytingar á landslagi svo sem hæðarlínur í jöklum, eldfjöllum og snjóalögum. Einnig er vélin búin mjög öflugum 360 gráðu radar sem getur greint skip í allt að 200 sjómílna fjarlægð og tegund þeirra í 40 sjómílna fjarlægð. Síðast en ekki síst skapar þessi nýja flugvél okkur Íslendingum kost á að fylgjast með hafinu umhverfis Ísland með allt öðrum og nákvæmari hætti en verið hefur. Til að færa þetta nær má líkja þessu við færslu af ritvél yfir á tölvu.

Þrátt fyrir þetta slæma árferði sem nú er, virðist sem svo að þetta áralanga baráttumál okkar Landhelgisgæslufólks sé að verða að raunveruleika. Hvernig sem notkun á vélinni verður háttað í framtíðinni munu í öllu falli skapast ómældir möguleikar á að geta séð hverju fram fer í íslenskri lögsögu og á hinu geysistóra björgunarsvæði landsins.

Með þessari nýju flugvél er einfaldlega um að ræða hreina byltingu í öryggis- löggæslu og eftirliti sem og leit og björgun á Íslandi. Þessi framsýna og stórhuga ákvörðun ríkisstjórnarinnar mun því marka þáttaskil í öryggis og björgunarmálum landsins. Þrátt fyrir tímabundnar þrengingar byggir Landhelgisgæslan á traustum grunni og skýrri framtíðarsýn sem staðið verður fast á og byggt ofan á um leið og betur sést til lands.

Fleiri myndir má sjá hér