TF-LÍF sækir slasaðan skipverja á Reykjaneshrygg

Mánudagur 22. júní 2009

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, var kölluð út kl. 22:20 í gærkvöldi eftir að togarinn Gnúpur GK frá Grindavík hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar. Slys varð um borð í togaranum þegar skipverji féll um borð og skaddaðis á baki. Læknir úr áhöfn þyrlunnar fékk upplýsingar um ástand skipverjans og ákveðið var að hann yrði sóttur.

Togarinn er staddur á Reykjaneshrygg eða um 180 sjómílur undan Reykjanesi. Sigldi togarinn á fullri ferð til lands, til móts við þyrluna. Kom TF-LÍF að togaranum kl. 01:22. Sigmaður seig niður með börur og undirbjó skipverjann fyrir flutning. Var hann síðan hífður um borð, var því lokið kl. 01:36.

Sjúkraflutningur gekk vel, lent var á Reykjavíkurflugvelli kl. 02:55 þar sem sjúkrabifreið sótti manninn og flutti á slysadeild.

Á Reykjaneshrygg var veðurfar 20-25 hnútar, skyggni og skýjafar þokkalegt, sjólag 3-4 metrar.

P5310014

Úr myndasafni LHG

220609/HBS